ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Gull og grjót

10:33 › 2. mars 2010

Það er ríkisstjórninni til skammar og lýsandi dæmi um forheimsku að skera þannig niður framlög til kvikmyndagerðar að greinin lendi við hungurmörk.

Gerð kvikmynda og sjónvarpsefnis er stór hluti af menningararfi þjóðarinnar og samtímasögu. Viðurkennt er að hver króna sem ríkið leggur til greinarinnar skilar sér margfalt til baka. Það er gæfuleysi núverandi ríkisstjórnar að geta ekki greint á milli þess sem engu skilar í þjóðarbúið og þess sem skapar allri þjóðinni arð. Önnur verðmæti liggja í menningunni sem greinin skilur eftir fyrir komandi kynslóðir. Ísland býr við þá gæfu að eiga fjöldann allan af hæfu fólki til að gera kvikmyndir. Þessi hópur hefur orðið til vegna þeirrar grósku sem hefur átt sér stað í greininni. Með niðurskurðinum glatast reynsla og þekking sem hefur verið byggð upp með úthaldi og elju mörg undanfarin ár.

Þjóðin mun þurfa að horfa upp á atgervisflótta vegna þessa og reynsla glutrast niður og hverfur. Aðförin að kvikmyndagerðarfólki er til dæmis um sauðshátt þeirra sem eiga að stýra þjóðinni út úr kreppunni. Ráðamenn eru tilbúnir til þess að verja þúsundir óþarfra starfa í opinbera geiranum á meðan einkafyrirtæki og heimili ramba á barmi gjaldþrots. Þeir þekkja ekki mun á arðsemi og sóun. Þetta kristallast í nær öllu sem er að gerast þessa dagana. Lítil áhersla er á það að örva hagvöxt með því að ýta undir framleiðslu. Ef rökrétt hugsun væri til staðar í kerfinu myndu menn skilja að framleiðsla kvikmynda er ekki aðeins atvinnuskapandi heldur líka arðbær. Það er táknrænt í þessu samhengi að Ríkisútvarpið skyldi hafa hent út verðlaunahátíð kvikmyndagerðarfólks, Eddunni. Einkafyrirtæki tók hátíðina upp á sína arma.

Framganga ríkisstjórnarinnar í þessu máli er klár vísbending um að kreppan verður mun langvinnari en hún annars þurfti að verða. Ástæðan er sú að stjórnvöld þekkja ekki góðmálma. Þau henda gullinu en hirða grjótið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.