Tónlistarmaðurinn og samfélagsrýnirinn Bubbi Morthens hefur aldrei farið troðnar slóðir. Þetta á við um tónlist hans jafnt og málflutning um þjóðfélagsmál. Bubbi skrifaði bloggpistil á Pressuna þar sem hann lýsti þeirri afstöðu sinni að hrunið væri um að kenna stjórnvöldum og þá helst Davíð Oddssyni.
Málflutningur Bubba er sá að ekki sé hægt að kenna útrásarvíkingum einum um það hvernig fór. Nefnir Bubbi sérstaklega þá Baugsfeðga, Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson sem sitja gjarnan undir þeim málflutningi að bera stærsta ábyrgð. ,,Þeir sem bera ábyrgð á hruninu eru gjörspillt embættismannakerfi og ríkisstjórn Davíðs Oddssonar sem lagði grunninn með allsherjar spillingu sem og meðreiðarsveinarnir, Framsóknarflokkurinn. Ríkisstjórn Geirs Haarde og meðreiðarsveinar hennar. Jarðvegurinn fyrir hrunið var löngu plægður," skrifar Bubbi.
Rök Bubba eru ágæt. Reiði almennings í garð útrásarvíkinga er þó eðlileg og skiljanleg. En jafnframt blindar hún fólki sýn og það sér ekki heildarmyndina. Útilokað er að halda því fram að fámennur hópur manna hafi sett landið á hausinn. Stóra myndin er sú að þeir sem kosnir voru til að stjórna landinu og hinir sem ráðnir voru til eftirlits brugðust algjörlega. Útrásarvíkingar geta ekki talist vera í aðalhlutverki þar þótt það henti ákveðnum áróðursmönnum að halda slíku fram til að varpa af sjálfum sér sökinni. Íslendingar kusu aldrei Björgólf Guðmundsson fremur en Jón Ásgeir. Þjóðin kaus Davíð og Geir til að vaðveita fjöreggið.
Augljóst er að útrásarvíkingar gerðu mörg og dýrkeypt mistök. Vandinn er hinsvegar sá að Ísland hefur um áratugaskeið verið rótspillt og þess vegna ákjósanlegur jarðvegur fyrir það sem gerðist örlagahaustið 2008. Þjóðin verður að gera þessi mál öll upp og setja ný viðmið hvað varðar siðferði í viðskiptum og stjórnmálum. Það verða fleiri útrásarvíkingar að stíga fram eins og Pálmi Haraldsson í Fons gerði í helgarviðtali við DV. Pálmi lýsti þar af hreinskilni því siðleysi sem átti sér stað meðan mesta útrásaræðið geisaði. Þegar allir eru tilbúnir undanbragðalaust til að gera upp sín mál myndast jarðvegur fyrir nýtt Ísland. En meðan umræðan er lituð með þeim hætti sem Bubbi bendir á í pistli sinum er engin von um siðbót.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Andlitslausir skúrkar
Lífeyrissjóðurinn svarar ekki
Æðruleysi Eiríks
Baráttan um Ísland
Vitnin þagna