ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Lýðskrumarar Alþingis

10:01 › 11. mars 2010

Alþingi Íslendinga er að verða sú samkoma sem helst skaðar íslenska þjóð. Þingmenn hafa ekki náð að hugsa út fyrir kassann. Þeir eru fastir í gömlu hjólförunum og hugsa um það eitt að veiða atkvæði með sýndarmennsku og áróðri. Bersyndugir stjórnmálamenn sýna þess engin merki að þeir ætli af einlægni að leiða Íslendinga til endurreisnar.

Þegar hálft annað ár er liðið frá hruninu stendur skrípaleikurinn sem hæst. Stjórnarandstöðuflokkarnir eru eingöngu í því að æpa eftir afsögn ríkisstjórnar eða kosningum að nýju. Einhver hluti þingheims lætur stjórnast af ótta við að skýrsla rannsóknarnefndarinn fletti ofan af fortíð þeirra. Og þá er auðvitað mikilvægast að sópa skítnum undir teppið og tryggja að þeir sem komu Íslandi á hliðina nái aftur vopnum sínum.

Aðeins er rúmt ár frá því þjóðin kaus frá völdum vanhæf og spillt stjórnvöld. Það er algjörlega hulin ráðgáta um hvað ætti að kjósa núna. Einhver kynni að segja að fullreynt væri með þá aumu fulltrúa sem sitja á Alþingi. Búsáhaldabyltingin ól af sér framboð sem skilaði fjórum mönnum á þing. Það tók þá einstaklinga aðeina örfáa mánuði að kljúfa sig frá baklandi sínu. Þeir skiptu um nafn og kennitölu og hafa síðan skakklappast umboðslausir um þingsali, fáum til gagns.

Þorra þjóðarinnar er fyrir löngu misboðið vegna þess aumingjaskapar og þeirrar ringulreiðar sem á sér stað í þinginu. Vinsældakeppni einstakra flokka og flokksbrota er um það bil að kalla yfir þjóðina aðra og líklega alvarlegri kreppu. Þetta fólk er að setja sjálft lýðveldið í hættu með ábyrgðarlausri framgöngu sinni. Og þá er illa komið fyrir þjóð við ysta haf. Lýðskrumarar, poppararnir á Alþingi, ráða hér þeirri framvindu sem felst í kyrrstöðu sem leiðin að feigðarósi. Það er eðlileg krafa að þingheimur geri sjálfum sér þann greiða að axla ábyrgð og ganga til nauðsynlegra verka til að lágmarka tjón Íslands. Kannski mun þá trú þjóðarinnar á þingið aukast. Að óbreyttu stefnir í skálmöld á Íslandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.