ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Ljóstrað upp um uppljóstrara

Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
08:50 › 3. febrúar 2010

Æðstu gildi blaðamanna eru skuldbindingin við sannleikann og verndun heimildarmanna. Án heimildarmanna geta fjölmiðlar ekki sinnt því lýðræðislega hlutverki að koma þjóðfélagslega mikilvægum upplýsingum til almennings, með eða án vilja yfirvalda og annarra valdaaðila. Blaðamenn um allan heim eru tilbúnir að fara í fangelsi til að vernda heimildarmenn sína skilyrðislaust.

Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 og Fréttablaðsins hafði ungur maður samband við fréttastofu Stöðvar 2 og bauð mikilsverð gögn um ákveðna auðmenn og vafasama, fjárhagslega gerninga þeirra. Fréttastofa Stöðvar 2 ákvað að tilkynna opinberlega að upplýsingarnar hefðu verið boðnar og veita Fréttablaðinu upplýsingar um manninn, sem voru síðan birtar á forsíðu þriðjudagsútgáfu blaðsins í umfjöllun um uppljóstrarann undir fyrirsögninni: „Stal gögnum úr kerfi sem hann setti upp“.

Uppljóstrarar, eða „whistleblowers“, hafa fram að þessu getað notið verndar þeirra fjölmiðla sem þeir leita til. Forsenda þess að þjóðfélagslega mikilvægar upplýsingar berist úr lokuðum kerfum er að uppljóstrarar geti treyst því að þeir njóti trúnaðar blaðamanna. Þegar fólk blæs í flautu vegna vafasams atferlis auðmanna blæs Stöð 2 hins vegar í herlúður sinn gegn uppljóstraranum. Það er í besta falli algerlega andstætt hlutverki fjölmiðla.

Fyrir auðmönnunum er grafalvarlegt mál að upplýsingar um misferli þeirra skuli koma fram. Í þeirra augum er mikilvægast að finna uppljóstrarann og gera hann óvirkan. Út frá sjónarhóli venjulegs fólks hlýtur það á hinn bóginn að teljast merkilegra hvað auðmennirnir aðhöfðust á kostnað landsmanna en það hvernig upplýsingar um það koma fram. Það mikilvægasta eru upplýsingarnar sjálfar.

Miðað við sýnileika fréttanna í Fréttablaðinu þótti þar mikilvægast að ungur maður væri grunaður um að afrita gögn auðmanna, eða „stela“ þeim, eins og blaðið sagði á forsíðu. Minna merkilegt þótti hvernig auðmennirnir hygluðu sjálfum sér á kostnað almennings í aðdraganda hrunsins, til dæmis með veðsetningu bótasjóðs Sjóvár með aðstoð núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins. Það virðist jafnframt vera ofar á forgangslista Fréttablaðsins og Stöðvar 2 að ljóstra upp um uppljóstrara en að fjalla um það sem uppljóstrararnir benda á.

Watergate-málið hefði aldrei komið upp ef Washington Post hefði ákveðið að benda á það opinberlega í hneykslisstíl að ákveðinn maður væri stöðugt að bjóða blaðinu upplýsingar. Aldrei hefði verið fjallað um stórfelld kúlulán starfsmanna Kaupþings og lántökur eigendanna ef fjölmiðlar hefðu eytt allri sinni orku í að ljóstra upp um mögulega uppljóstrara. Viðbrögð fréttastofu Stöðvar 2 eru alger trúnaðarbrestur milli fjölmiðils og uppljóstrara.

Fólk er eindregið hvatt til að hafa samband við DV ef það telur sig geta varpað ljósi á mikilvæg hagsmunamál almennings. Fjallað verður um þær upplýsingar sem veittar eru, en ekki um fólkið sem veitir upplýsingarnar. DV mun ekki rjúfa trúnað við þá sem koma upplýsingum til blaðsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.