ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Martröð Nýja-Íslands

Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
21:08 › 22. febrúar 2010

Martröð Nýja-Íslands er að ríkisstjórn Samfylkingar og vinstri grænna verði með puttana ofan í einstökum ákvörðunum bankanna um viðskiptalífið. Fyrr eða síðar myndu vanheilög tengsl stjórnmálaflokka og stórfyrirtækja valda spillingu sem yrði verri en spillta viðskiptalífið fyrir hrun. Vald ríkisstjórnar yfir ákvörðunum bankanna myndi marka endalok endurreisnarinnar og upphaf nýrrar spillingar.

Martröðin er að samstaða komi í stað gagnrýni og átaka; að allir þingmenn ríkisstjórnarinnar gangi í takt fylgjandi ákvörðunum formanna stjórnmálaflokkanna. Að atvinnulíf og stjórnmál myndi með sér sömu samstöðu og var þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fór með Sigurði Einarssyni til Kaupmannahafnar til að tala máli bankanna í mars 2008. Samstaðan var einkenni Íslands fyrir hrun. Samstaða er eitt helsta einkenni samfélaga í einvaldsríkjum. Lýðræðið er hins vegar stöðug átök, tortryggni og gagnrýni.

Martröðin er að Íslendingar kalli yfir sig sterkan leiðtoga, sem aldrei viðurkennir mistök, og refsi þeim stjórnmálamönnum sem geta endurmetið áhrif ákvarðana sinna í ljósi breyttrar stöðu. Hún er að þjóðin hafi ekki þroska til að hafna þeim sem vilja ekki biðjast afsökunar og líti á þá sem veikgeðja sem biðjast afsökunar. Martröðin er að hér verði ríkjandi persónustjórnmál, þar sem afstaða snýst um að styðja óskeikula leiðtoga óháð málefnum og ákvörðunum. Hún er að stjórnmálin verði eins og fótboltaleikur.

Martröðin er að fólk verði aftur gert hornreka fyrir skoðanir sem samrýmast ekki vilja valdamanna. Að fólk verði jafnvel rekið úr stöðum sínum á vegum ríkisins ef það tjáir sig frjálst.

Martröðin er að þeir sem lögðu drög að Icesave-samningnum komist til valda með því að gagnrýna Icesave-samninginn. Hún er að Sjálfstæðisflokkurinn komist til valda áður en hann verður dæmdur fyrir gjörðir sínar. Hún er líka að vinstri grænir venjist valdinu hraðar en þeir ná að siðvæða stjórnkerfið og stjórnmálin og lögbinda móteitur gegn spillingu.

Martröð Nýja-Íslands nálgast. Ákallið eftir blindri samstöðu og sterkum leiðtoga til skjótra aðgerða verður sífellt háværara meðal fólksins í landinu. Það er eðlilegt ákall frá fólki sem hefur verið fórnað í skipulegan, langvarandi þrældóm íslenskra húsnæðis- og bílalána. Ríkisstjórnin verður að setja í forgang að klára almenna löggjöf sem tjóðra bankana og frelsa almenning undan oki þeirra. Ágætis byrjun er frumvarp Lilju Mósesdóttur um að fólk geti skilað bankanum fasteign sinni án þess að bankinn hundelti það eins og sakamenn, á sama tíma og hann afhendir grunuðum sakamönnum eignir á færibandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.