ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Innrás Íslands í Írak

08:31 › 2. febrúar 2010

Meðal umdeildustu ákvarðana stjórnvalda á lýðveldistímanum er sú að styðja innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Forkólfar þáverandi ríkisstjórnar, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson, sniðgengu Alþingi Íslendinga og ákváðu einhliða að lýsa yfir stuðningi Íslands við innrásina sem rökstudd var með því að Saddam Hussein, forseti Íraks, réði yfir gereyðingarvopnum og væri því hættulegur heimsbyggðinni. Með einni gerræðislegri ákvörðun komst Ísland á lista hinna viljugu þjóða. Málið hefur allar götur síðan verið umdeilt. Saddam Hussein fannst niðri í holu við bóndabæ og var tekinn af lífi. Aftur á móti hefur ekkert fundist sem bendir til þess að slík ógn hafi staðið af stjórnvöldum í Írak að innrás væri réttlætanleg. Í Bretlandi hefur þátttaka stjórnvalda verið gagnrýnd með rökum og innrásin af mörgum talin ólögleg. Bretar komu á laggirnar rannsóknarnefnd sem ætlað var að kryfja málið til mergjar og varpa ljósi á aðdragandann. Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, og aðrir lykilmenn sæta yfirheyrslum vegna þessa.

Það sætir furðu að í því uppgjöri sem á sér stað á Íslandi skuli ekki vera efnt til rannsóknar á því hvernig örfáir stríðsóðir, einræðissinnaðir einstaklingar náðu að gera íslensku þjóðina ábyrga fyrir innrásinni. Það er full ástæða til að stofna rannsóknarnefnd sem hefði það hlutverk að fara ofan í aðdraganda þeirrar óheillaákvörðunar að styðja innrásina. Stjórnarþingmennirnir Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Ögmundur Jónasson eiga heiður skilið fyrir að krefjast þess að slík nefnd verði sett á laggirnar. Málið ætti að vera einfalt í rannsókn. Bæði Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson þurfa að svara spurningum um aðdragandann og formið á ákvörðuninni. Niðurstöður rannsóknarinnar yrðu síðan grunnur að lögsókn ef til kæmi. Það má aldrei aftur gerast að Ísland verði þátttakandi í styrjaldarátökum án þess að þing og þjóð séu með í ráðum. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gæti að hluta rekið af sér slyðruorðið með því að tryggja að rannsóknarnefndin verði til.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.