ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

RÚV selur sig

19:15 › 19. febrúar 2010

Ríkisútvarpið er í senn á villigötum og í ógöngum. Undir stjórn núverandi útvarpsstjóra hefur það færst frá því að vera almannaútvarp yfir í að vera til sölu fyrir nánast hvern sem er.

Útvarpsstjóri hefur ráðist á gróin vígi þess, svo sem svæðisstöðvarnar, og nánast útrýmt þeim. Með þeim aðgerðum er fólkinu í landinu sýnd fullkomin fyrirlitning. Starfsmenn svæðisstöðvanna hafa sinnt sínum landsvæðum af alúð. Þar hefur blómstrað ákveðin menning sem ekki nær inn í fjölmiðla á landsvísu.

Stöðvarnar hafa orðið hluti af þjóðmenningu hvers svæðis fyrir sig og þannig gegnt ómetanlegu hlutverki. Sumt af því efni sem unnið hefur verið úti á landi hefur síðan ratað inn í umfjöllun á landsvísu. Áratugum saman hafa fréttamenn landsbyggðarinnar staðið sína vakt með sóma en eru nú slegnir af á svipstundu.

Ríkisútvarpið er eitt fórnarlamba græðgisvæðingar þjóðarinnar. Þetta hófst með því að ráðinn var útvarpsstjóri á ofurlaunum og settur undir hann sportbíll. Í framhaldinu fór stofnunin, knúin áfram af almannafé, að keppa við frjálsa fjölmiðla um fólk og tekjur. Einkum á þetta við um auglýsingar. RÚV hefur sérhæft sig í því að selja aðgang að flestu sínu efni. Bjórauglýsingar, þar sem bjór er kynntur sem léttöl, dynja á landsmönnum. Þá er hamborgarafyrirtæki með samning um að auglýsing þess birtist fyrir og eftir bíómyndir.

Í þessu kristallast siðleysi stjórnendanna. Allt er til sölu gegn réttu gjaldi. Stofnunin sem á að vera eign alls almennings og rekin í þágu fólksins í landinu selur sig grimmt og hefur þannig glatað sérstöðu og trúverðugleika sem almannamiðill. Alþingi Íslendinga verður að grípa í taumana og skilgreina tilgang þjóðarútvarpsins. Líklega er þó eina leiðin að skipta um yfirstjórn. Núverandi útvarpsstjóri er græðgin uppmáluð og stjórnar sem slíkur. Hans tími á að vera liðinn. Kominn er tími á endurreisn þjóðarútvarps á Íslandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.