ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Sakborningar tala

Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
21:20 › 12. febrúar 2010

Með hverjum deginum sem líður verða misgjörðir ríkisstjórnar Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar ljósari. Niðurstaðan talar fyrir sig. Hvert barn sem kemst ekki til tannlæknis, hver maður sem missir vinnuna og hver fjölskylda sem berst við að borga af stökkbreyttu láni er afleiðing af störfum Geirs, Ingibjargar og annarra sem var treyst fyrir æðstu valdastöðum. En nú er í ofanálag að verða ljóst að þegar þau sögðust vera í björgunarleiðangri héldu þau áfram að vinna þjóðinni skaða.

Það segir sína sögu að meinti innherjasvikarinn Baldur Guðlaugsson var valinn af ríkisstjórninni til að vera í samninganefnd um Icesave-málið. Geir og Ingibjörg reyndu á sama tíma að sannfæra okkur um að ekki ætti að ganga til kosninga eftir hrunið, því að þau væru í björgunarleiðangri. Leiðangurinn snerist um það að hin seku og hin grunuðu í stærsta glæpnum gegn íslenskri þjóð á síðari árum reyndu að sannfæra þjóðina um að þau sjálf væru saklaus fórnarlömb eða jafnvel hetjulegir velgjörðarmenn þjóðarinnar.

Í miðri búsáhaldabyltingunni, þar sem fólk veifaði spjöldum með nafni og andliti Geirs Haarde, sagðist Geir ekki telja að mótmælunum væri beint gegn sér sérstaklega. Hann fullyrti að ef þjóðin fengi að kjósa, fengi hún ekki lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, enda hefði hann séð um samskipti við sjóðinn. Ingibjörg Sólrún sagði gagnrýnendum sínum að þeir væru ekki þjóðin. Í umræðunni er nauðsynlegt að taka tillit til mannlega þáttarins, ekki síður en þess málefnalega. Þau eru manneskjur sem réttlæta eigin gjörðir fyrir sjálfum sér og sannfæra sig um að þau hafi gert lítil eða engin mistök, heldur hafi mistökin verið annarra og orðið til af utanaðkomandi ástæðum. Byggjandi á íslenskri stjórnmálahefð réttlæta þau gjörðir sínar og forðast ábyrgðina fram í rauðan dauðann.

Nú skammast hinn grunaði Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra hrunsins, út í seðlabankastjóra Hollands, fyrir að segja að Íslendingar hafi logið. Og hinn grunaði Davíð Oddsson hossar sér á því að hafa sagt seðlabankastjóra Hollands frá því að hann hafi varað ríkisstjórnina við hruninu með sex mánaða fyrirvara árið 2008. Hinn grunaði Davíð er styrktur af hagsmunaöflum til að skrifa hverja greinina á fætur annarri um mistök núverandi ríkisstjórnar, sem reynir að hreinsa upp eftir meintar misgjörðir hans. Hin grunaða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stekkur inn í þjóðfélagsumræðuna með þær yfirlýsingar að ekki skipti máli að ríkisstjórn hennar hafi rissað upp Icesave-samning með miklu verri kjörum en sá sem nú er rakkaður niður.

Tilfelli hinna grunuðu í íslenska efnahagshruninu sýnir hversu erfitt það er fyrir einu og sömu manneskjuna að vera brennuvargur, slökkviliðsmaður, lögregla og dómari í sama málinu. Hin grunuðu eru ekki jafnmarktæk í umræðunni og aðrir. Þau eru ekki betri heimildarmenn um hlutina, þótt þau þekki málin vel. Þau eru ekki hlutlaus vitni að glæpnum. Þau eru sakborningar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.