Sveitarfélagið Álftanes er skólabókardæmi um þá óráðsíu sem á sér stað í sveitarfélögum á Íslandi. Víðast hvar fylgdu forystumenn hinna ýmsu byggða útrásinni eftir í bruðli. Verst er ástandið á höfuðborgarsvæðinu þar sem sjö sveitarfélög eru á sama blettinum en hvert með sína yfirbyggingu.
Álftanes, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes eru öll með sinn bæjarstjóra sem kostar ekki undir milljón krónum á mánuði fyrir utan sporslur. Þá eru ótal svið undir hverjum og einum kónganna sjö. Reykjavík er smáborg á heimsvísu og nágrannasveitarfélögin eru úthverfi.
Það er fullkomið rugl að halda úti öllum þessum stjórnkerfum. Það er almenningur í þessum sveitarfélögum sem borgar fyrir alla þessa starfsmenn sem flestir eru að gera það sama. Það er því ekki tvíverknaður í gangi, heldur sjöverknaður. Það er enginn meðvitaður um það í sveitarfélögunum að peningar til að halda þeim gangandi séu sóttir í vasa almennings sem þegar glímir við stórhækkað verð á nauðsynjum og hærri skatta.
Þessi blettur á Íslandi sem þarf sjö stjórnkerfi er af þeirri stærðargráðu að það tekur bílstjóra hálftíma að aka um öll sveitarfélögin. Þrátt fyrir augljós bágindi er enginn að ræða það í alvöru að sameina þau í eina smáborg. Líklega ræður þar kóngablæti og heimóttarskapur mestu um. Það þykir merkilegt að vera Hafnfirðingur eða Garðbæingur. Það er til marks um gamaldags heimsku og þröngsýni að menn skuli ekki hafa stigið þau skref að sameina öll þessi sveitarfélög undir merki Reykjavíkur. Hverfin geta heitið eftir gömlu úreltu bæjarfélögunum.
Fáránleikinn sést á því að það tekur örfáar mínútur að aka frá ráðhúsinu í Kópavogi að ráðhúsinu í Reykjavík. Svipuð vegalengd er út á Seltjarnarnes þar sem enn eitt konungdæmið er að finna. Með sameiningu næðist fram augljós sparnaður upp á milljarða króna. Verði ekkert aðhafst munu fleiri bæjarfélög fara sömu leið og Álftanes sem nú er á framfæri ríkisins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Andlitslausir skúrkar
Lífeyrissjóðurinn svarar ekki
Æðruleysi Eiríks
Baráttan um Ísland
Vitnin þagna