Hjarta spillingar
Leiðari Föstudagur 3. júlí 2009 kl 08:25
Hjarta íslenskrar spillingar var í íslensku bönkunum í mesta brjálæði þenslunnar. Þær upplýsingar úr lánabók Kaupþings sem DV hefur birt undanfarið varpa skýru ljósi á þær falsanir sem áttu sér stað í aðdraganda hrunsins. Það er staðreynd að æðstu menn Kaupþings tóku sér milljarða króna að láni án þess að nokkru sinni væri nein áhætta samfara lántökunni.
Á sama tíma og þeir seildust í forboðna ávexti var efnahagur bankans styrktur með pappírskúnstum. Þetta var lántaka sem einungis var hægt að hagnast á. Siðblindan í Kaupþingi tekur á sig skýra mynd í lánabókinni. Óljóst er hvort það athæfi stjórnenda bankans að afnema persónulegar ábyrgðir sé löglegt. Þó velkist enginn í vafa um að gjörningurinn er siðlaus. Óbreyttir viðskiptavinir Kaupþings hafa ekki notið sömu fyrirgreiðslu.
Kaupþing, líkt og aðrir bankar, hefur undanfarið sett fjölda fólks í gjaldþrot vegna upphæða sem eru aðeins brot af því sem sjá má í lánabókinni. Ótal dæmi eru um venjulega óspillta Íslendinga sem hafa beðið bankann griða eða niðurfellingar án þess að miskunn hafi fengist. Topparnir í Kaupþingi höfðu sínar ástæður til að láta næstráðendur sína fá kúlulán. Þeir mynduðu skjaldborg um spillingu og gerðu þeir undirmenn sína samábyrga í græðginni.
Í DV í dag eru birt nöfn fjölda starfsmanna bankans sem gerðust bakhjarlar hinna spilltu. Þetta er sama fólkið og krefur venjulegt fólk um fulla greiðslu á öllum skuldum eða steypir því annars miskunnarlaust í ógæfu. Bankinn sem gaf sínu fólki eftir milljarða djöflast á sakleysingjum og smáskuldurum.
Yfirlögfræðingur bankans er einn þeirra sem þáðu. Réttlætið felst í því að hann hætti störfum eftir að DV opnaði hans hluta af lánabókinni og sýndi svart á hvítu að hann hafði þegið 450 milljóna króna kúlulán og seinna lagt til að ábyrgð hans yrði felld niður. Sá forarpyttur sem opnaður hefur verið er ein skýrasta myndin af því hvers vegna Ísland er næstum eða alveg gjaldþrota.
Lánabók Kaupþings sýnir þó aðeins hluta heildarmyndarinnar. Aðrir bankar gengu fram af svipuðu siðleysi. DV mun af fremsta megni ná fram í dagsljósið því sem þar gerðist. Fyrir þjóð á barmi hengiflugs er nauðsynlegt að fara í gegnum öll þessi mál.







