ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.8° 0m/s Calm

Krumlur sjálftökuliðs

08:47 › 1. september 2008

Áhrif liðins góðæris má merkja á gengdarlausri sjálftöku þeirra sem fara með almannafé. Virðingarleysið í bæjarstjórnum og á Alþingi fyrir því að þeim ber að gæta peninga almannings er nær algjört. Fræg gisting samgöngunefndar Alþingis í Kríunesi, skotspöl frá heimilum nefndarmanna, er lýsandi dæmi um það að þingmennirnir sem í hlut áttu telja sjálfsagt að sólunda peningum. Stöðugur þvælingur dómsmálaráðherra um heimsbyggðina er af sama toga.

Og þessi viðhorf eru víðar. Hjá Reykjavíkurborg er það með miklum eftirgangsmunum að Fjölskylduhjálp Íslands, sem fæðir og klæðir fátæka, fær frítt húsnæði. Gengið er fram af harðneskju til að stefna sjálfboðaliðum fyrir dóm til að innheimta húsaleigu. Oflátungsháttur þeirra sem stýra Borginni er á sama tíma algjör. Borgarstjóri er með aðstoðarmann og einkabílstjóra sem almenningur í Reykjavík þarf að greiða fyrir. Og forseti borgarstjórnar þarf líka sinn einkabílstjóra og fólkið borgar.

Hjá Alþingi er hið sama uppi á tengingnum. Ráðherrar eru á annan tug og þeim fylgja jafnmargir aðstoðarmenn að ónefndum þeim pólitísku gæludýrum sem ráðnir eru í tímabundin verkefni. Landsbyggðarþingmenn fengu samþykkt að hver þeirra hefðui sinn aðstoðarmann. Tugir manna eru sem sagt ráðnir í fulla vinnu til að vera aðstoðarmenn þingmanna sem margir hverjir eru óþarfir. Og þetta fyrirkomulag var samþykkt af hinu háa Alþingi sem augljóslega er algjörlega laust við hagsýni eða meðvitund um það hvernig fara skal með peninga.

Það er auðvitað engin glóra í því að fólkið sem borgar skatta og útsvar þurfi að horfa upp á allt þetta rugl. En jafnframt er lítil von til að þetta lagist. Þjóðin mun þurfa að halda uppi allskyns óþurftarfólki á launum inn í framtíðina. Enginn pólitíkus hefur vakið máls á því að leiðrétta ruglið og meðvirknin er algjör. Sóunin mun því halda áfram, nema að almenningur grípi í taumana og hafni sjálftökuliðinu sem seilist ofan í vasa almennra borgara til að spenna og eyða.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?