Eins og fram hefur komið í fjölmiðlafárinu undanfarið sætti DV ákveðnum ógnunum sem urðu til þess að birtingu fréttar var frestað. Í því felst að faglegt sjónarmið vék fyrir mannlegu.
Í byrjun nóvember kom upp sú staða að ritstjóra blaðsins bárust upplýsingar sem bentu til þess að tilvist þess væri ógnað. Vikuna á undan hafði ríkt andrúmsloft í sama dúr og fjöldi vísbendinga var um að hugsanlega yrði látið til skarar skríða. Í húfi var atvinna fjölda fólks. En kúgun og hótanir eiga ekki að hrífa á ritstjórnir. Þar liggur meinið. Í aðeins einu tilviki hefur frétt verið frestað af þessum sökum. Og það er einu tilviki of mikið. Þar skiptir engu þótt málið hafi ekki verið stórt. Grundvallaratriðin verða að halda.
Fólk getur velt því fyrir sér hversu mörgum fréttum er haldið til baka á þessum forsendum á öðrum fjölmiðlum. Nokkur þekkt dæmi eru um slíkt. En það er ekki afsökun fyrir DV. Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans, á ekki fremur en aðrir að sleppa við birtingu, jafnvel þótt fréttin bæti litlu við það sem áður hafði verið sagt. Það er kaldhæðni örlaganna að DV var á sínum tíma dæmt úr leik fyrir að birta frétt um einstakling sem fyrirfór sér nóttina áður en blaðið kom út. Ritstjórar blaðsins sögðu sig frá störfum sínum. Nú er blaðið dæmt harkalega vegna þess að frétt var ekki birt. Og það gerist þótt vandað hafi verið til blaðamennsku og blaðið ekki lent í áföllum af þeim völdum.
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV, bloggaði eftirfarandi um málið: „Vont er, ef Sigurjónsmálið leiðir til afsagnar Reynis Traustasonar sem ritstjóra. Ég vona bara, að fundur starfsmanna á ritstjórn DV leiði ekki til slíks. Hann er hæfasti blaðamaður og ritstjóri landsins um þessar mundir. Jafnvel þótt honum hafi orðið á í messunni í Sigurjónsmálinu. Sannkallaða kraftaverkamenn þarf til að stýra áskriftardagblöðum nú á tímum og Reynir er einn fárra slíkra.“
Þetta eru hlý orð frá Jónasi sem leggur til að beðist verði afsökunar á mistökum. Þeirri áskorun hans er tekið. Almenningur og blaðamenn DV eru beðnir afsökunar á því að fréttin birtist ekki, jafnvel þótt það hefði kostað blaðið lífsneistann. Jafnframt er ljóst að aldrei aftur mun óttinn við afkomuna stýra því hvenær fréttir birtast. Fréttin um Sigurjón er sú lexía sem dugir.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fyrirmyndarfangi
Kjarkur Berglindar
Slímkenndur áróður
Samfélag óttans
Ólafur Ragnar og aðferð Davíðs
