Ríkisstjórnin lækkar skatta þegar of mikið góðæri er hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Ríkisstjórnin hækkar skatta þegar fyrirtæki og fólk lepja dauðann úr skel. Bankarnir stórauka útlán þegar það er góðæri, en loka á lánsfé þegar þrengir að.
Þegar atvinnuleysi er eitt prósent stendur ríkið í stærstu framkvæmdum sögunnar. Þegar atvinnuleysið er sjö prósent grípur ríkið til mesta niðurskurðar síðari ára. Þegar auðmenn eignast tugmilljarða og misskipting eykst er hátekjuskattur afnuminn. Þegar auðmenn rústa þjóðfélaginu og skattar eru hækkaðir á alla breytir leiðtogi jafnaðarmanna hátekjuskatti í táknmynd.
Þegar verðbólgan verður óviðráðanleg auka stjórnvöld verðbólguna með hækkun ýmissa gjalda. Þegar fyrirtæki og einstaklingar sligast eru stýrivextir hækkaðir um sex prósent. Þegar lágt launaðir og atvinnulausir fara niður að fátækrarmörkum er strætófargjald hækkað þrefalt. Þegar þjóðin er í ofneyslu er matarskattur lækkaður. Þegar laun lækka og fólk missir vinnuna snarhækkar matarverð og gjöld á neysluvörur. Þegar fasteignaverð lækkar um þriðjung hækka fasteignalánin um þriðjung á móti.
Þegar sérhver Íslendingur borgar milljónir fyrir skuldir Björgólfs Guðmundssonar gagnrýnir hann þjóðina fyrir að kaupa flatskjá. Þegar seðlabankastjórinn sefur á verðinum og efnahagskerfið hrynur skammar hann fjölmiðla fyrir að segja ekki frá því. Þegar forsætisráðherrann stýrir hagkerfinu öfugt og það fellur sem spilaborg við minnstu ágjöf kennir hann vindinum um.
Þegar þjóðin stendur frammi fyrir stærstu spurningunum um íslenskt samfélag á lýðveldissögunni fær hún ekki að kjósa. Þegar stjórnmálamenn verða uppvísir að vanhæfni og blekkingum eru þeir of mikilvægir til að það megi trufla þá með kosningum. Þegar bankastjóri tekur 184 milljóna króna lán til að kaupa í eigin banka sem fer í þrot, en segir lánið hafa gleymst, er hún metin hæf til að vera bankastjóri. Þegar stjórnendur Kaupþings kollvarpa bankanum er persónulegri ábyrgð aflétt af lánum þeirra. Þegar Sjálfstæðisflokkur og Samfylking kollsteypa þjóðinni segja framsóknarmenn af sér.
Þegar jólin koma verður 12 stiga hiti.
Ísland er á hvolfi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Andlitslausir skúrkar
Lífeyrissjóðurinn svarar ekki
Æðruleysi Eiríks
Baráttan um Ísland
Vitnin þagna