
Shutter Island
Leikstjórn: Martin Scorsese
Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio, Mark Ruffalo, Ben Kingsley, Michelle Williams,Patricia Clarkson, Max von Sydow
Shutter Island er nýjasta mynd Óskarsverðlaunaleikstjórans Martin Scorsese og af sjálfsögðu er gulldrengurinn hans, Leonardo DiCaprio, í aðalhlutverki. Myndin fjallar um lögreglumanninn Teddy Daniels (DiCaprio) sem fer ásamt nýjum samstarfamanni sínum, Chuck (Mark Ruffalo) til þess að rannsaka hvarf vistmanns á hinu drungalega geðsjúkrahúsi Shutter Island.
Málið er allt hið undarlegasta og með öllu óskiljanlegt hvernig vistmaðurinn slapp. Daniels er fullur efasemda og starfsfólk staðarins virðist allt annað en reiðubúið til þess að hjálpa við rannsóknina. Þegar líður á myndina kemur í ljós að eitthvað mjög undarlegt er í gangi á Shutter Island og Daniels er ekki bara mættur til þess að rannsaka hvarfið.
Shutter Island er einstaklega vönduð og vel gerð mynd. Sú hlið sem snýr að kvikmyndalistinni er glæsileg. Útlit myndarinnar; myndataka, umhverfið, hljóð, tónlist og hvernig þessir hlutir koma saman sýnir hversu ótrúlega fær Scorsese er á sínu sviði. Ekki bara í þessum hlutum heldur stemningin sem honum tekst að skapa með þeim.
Leonardo DiCaprio virðist sífellt koma manni á óvart. Hann hefur fengið þá gagnrýni á sig að vera of einsleitur en í hvert sinn sem maður sér hann sýnir hann einhverja nýja takta eða áður óséða hlið. Hann er frábær leikari og einn sá allra besti í dag. Fyrir utan hann er myndin þétt setin af sterkum leikurum og ekki veikan blett á henni að finna hvað það varðar.
En Shutter Island er þannig mynd að annað hvort ertu að fíla hana og fléttuna í heild eða þá að þú gerir það ekki. Þá virðist allt sem á undan er talið fara fyrir lítið. Ég er í hópi þeirra fyrr nefndu og það er langt síðan ég hef horft á mynd þar sem síðasta setning hennar rekur lokahnikkinn og fær mann til þess að skilja allt sem á undan var komið.
Ásgeir Jónsson





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Ekki besta vinnan til að vera þunnur í“
Depardieu leikur Strauss-Kahn
Klámið hans Spielbergs
Leikur í stórmynd Steven Spielberg
Kanntu línurnar?