ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Satanískt vont

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:47 › 17. mars 2010
Legion

Þar sem guð hefur fengið leið á syndumspilltu mannfólkinu er heimsendir næst á dagskrá. Hann sendir englaher af stað í þeim tilgangi að koma endalokunum til leiðar. Erkiengillinn Mikael hefur allt aðrar hugmyndir um framhaldið og ákveður að há lokaorrustuna á einmanalegri bensínsjoppu í miðri eyðimörkinni. Þar nýtur hann félagsskapar og aðstoðar görótts hóps af ferðalöngum sem eru nú strandaglópar á sama stað. Björgun mannkyns er í þeirra höndum.

Landslið b-myndaleikara er hér mætt með nokkrum undantekningum á borð við Paul Bettany sem leikur hinn lítt englalega engil sem fer mikinn með gríðarlegu vopnabúri sínu. Sögusviðið er einnig vont. Það er alltaf jafnkjánalegt þegar spádómar miðausturlandatrúarbragða á borð við kristni ganga í uppfyllingu í Bandaríkjunum. Það er ekki nógu mikill hasar og geðveiki til að hún myndi sleppa sem skítsæmileg zombie-mynd á trúarlegu nótunum. Og hér er síðan engin dýpt til að lifa upp í flókna trúarbragðaræmu en grunnhugmyndin er í sjálfu sér ekkert alslæm.

Brellurnar fá ekki að lifa til enda, það er klippt undarlega á hasaratriðin sem þar að auki eru alltof fá. Síðan eru sögupersónurnar á trúnó meðan beðið er eftir endalokunum, hverju öðru verra. Sýnu verst samt þegar englarnir Mikael og Gabríel taka hómóerótískt Hamletstrúnó með breskum hreim. Útkoman er eins og lélegur þáttur á lélegri sjónvarpsstöð.

Myndir á trúarlegum grunni er margar hverjar mjög kraftmiklar óháð því hverju menn trúa síðan þegar menn yfirgefa bíósalinn. Angel Heart, Exorcist, Stigmata, Dekalogue, Anti Christ, Devils Advocate o.s.frv. eru allt snilldardæmi um slíkt. Paul Bettany er auðvitað góður leikari en í öðru eins syndaflóði af vondri mynd er erfitt að haldast á floti.

Það er ekkert guðlegt við þessa mynd. Hún er bara ekki að virka, er hallærisleg og maður vill bara að guð klári þennan heimsendi svo maður komist út sem fyrst.

Erpur Eyvindarson



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.