
Undirritaður viðurkennir það strax að hann fílar myndir eins og From Paris With Love. Einfaldleikinn í fyrirrúmi, einn geðveikur gaur sem lemur alla, drepur hina og er með dólgslæti við aðra. Ég tala nú ekki um þegar Luc Besson kemur nálægt myndinni. Þá á maður nú alltaf von á einhverju góðu en Besson skrifaði söguna fyrir myndina en félagi hans Adi Hasak gerði handritið.
From Paris With Love er æðislega einföld spennumynd. Jonathan Rhys Meyers leikur James Reece, starfsmann hjá bandaríska sendiráðinu í París sem vinnur einnig á laun fyrir heimavarnarráðuneytið. Verkefni hans þar eru þó aumingjaleg og vill hann meira.
Það fær hann svo sannarlega þegar ofurtöffarinn Charlie Wax, leikinn af Travolta, mætir í bæinn. Reece á að keyra hann um bæinn en verkefni hans hlaðast svo sannarlega upp þar sem hann er farinn að berja gaura og drepa þá á meðan hann heldur á fullum vasa af kókaíni.
Það má alveg deila um það hvort Travolta sé orðinn of gamall fyrir svona spennumyndir en mér fannst hann leysa verkefnið bara ágætlega. Sumt sem hann gerði var örlítið kjánalegt á köflum en hann er bara gaur að gera töff hluti. Samband hans við Reece styrkist svo og styrkist með hverri mínútunni á meðan þeir aka á milli húsa og eru með dólgslæti.
Myndin er ekkert meistaraverk. Bara einföld spennuflétta sem allir strákar ættu að hafa gaman af. Hvað mig varðar hefur Luc Besson alltaf verið jafngildi skemmtunar og það er þessi mynd svo sannarlega. Algjör lúxusræma sem fylgir einföldu plotti frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.
Tómas Þór Þórðarson





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Mér finnst verið að segja að Eddan sé meiri en Emmy“
„Ekki besta vinnan til að vera þunnur í“
Depardieu leikur Strauss-Kahn
Klámið hans Spielbergs
Leikur í stórmynd Steven Spielberg