ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Lína Langsokkur fyrir fullorðna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:19 › 10. mars 2010
Loftkastalinn sem hrundi

Þegar fyrsta myndin í þrennu Stieg Larssons kom fyrir skynfæri almennings má segja að hún hafi verið eins og ísköld frískandi vatnsgusa. Ein ánægjulegasta, vandaðasta og frumlegasta bíóupplifun í áraraðir.

Mikael Blomkvist er rannsóknarblaðamaður af hörðustu gerð sem gerir spilltum valdamönnum lífið leitt. Rannsókn hans á mannshvarfi af setri valdaættarinnar Vanger keyrir okkur á bólakaf í þvílíka ormagryfju spillingar, mansals, barnaníðs, valdagræðgi og misnotkunar. Framvindan snýst um Lisbeth Salander sem Larsson hefur lýst sem sinni útfærslu af Línu Langsokk þegar hún yxi úr grasi.

Stórsnjöll og miskunnarlaus leitar hún leiðréttingar á óhuggulegum örlögum sínum sem kerfið hefur blessað með öllum sínum valdasprotum. Mikael Blomkvist er feminísk karlhetja sem gengur ekki með skammbyssu og er umkringdur snjöllum stelpum en ekki kampavínsskjátum eins og bíóspæjurum er gjarnt. Stelpan sem lék sér að eldinum endaði með skýrri tilvísun í framhaldið sem nú ber fyrir augu.

Hér liggur hún á spítala með kúlu í hausnum og bíður þess að réttað verði yfir henni fyrir morðtilraun á ógeðfelldum föður sínum Zahlazenko. Hún virðist enn og aftur týnd í kerfi gamalla hvítra karla, leyniþjónustu konungsríkisins Svíþjóðar í öllum hátíðleika hins falda valds. Niederman, þýska líffræðikeisið, ógeðisofurmennið og hálfbróðir Lisbeth, leitar hennar ákaft með illar fyrirætlanir.

Fáum er treystandi. Laganna verðir framkvæma löglausa gjörninga sem grassera í skugga valdsins. Mótórhjólagengin svífast einskis, leigumorðingjar eru á stjái og yfirvofandi er aðgerð til að sverta mannorð Blomkvist. Senn líður að réttarhöldunum yfir Lisbeth og hún er nagandi spennan vitandi af ásnum sem Lisbeth og verjandi hennar sitja á.

Það eru svo margir þræðir sem bíða úrlausnar í þessu lokaklímaxi að maður situr stjarfur af spennu. Og þrátt fyrir að þetta sé lokamynd þrennunnar er fjórða handritið til og drög að þeirri fimmtu og sjöttu. Öll vinnsla er markviss, myndin er snjöll, næm og vel leikin. Persónusköpun og samræður eru frábærar ekki síst í augnablikum hinnar tilfinningaheftu Lisbeth þar sem hún gægist út um skelina við og við. Myndinni fipast aldrei og er sagan skrifuð af víðtækri þekkingu. Hér eru hetjurnar rannsóknarblaðamenn sem taka skyldur sínar alvarlega.

Reynsla Stieg Larsons af blaðamennsku er notuð grimmt. Hann lifði í sífelldri ógn sem ritstjóri Expo-blaðsins þar sem hann meðal annars svipti hulunni af tengslum hægriöfgamanna og snyrtilegra valdamanna. Hinn danski Nils Arden Oplev skilaði okkur fyrstu myndinni af ferskleika og krafti.

Stelpan sem lék sér að eldinum er síðan tenging okkar yfir í lokaklímaxið sem skilar sínu svo um munar. Hinn sænski leikstjóri Daniel Alfredson gefur Nils Arden lítið eftir í seinni myndunum tveimur þótt eitthvað beri nú á milli. Hér er um frábæra heildarþrennu að ræða sem best væri að sjá með stuttu millibili.

Loftkastalinn hrynur í frábærri spennu, eltingaleikjum, ráðgátum, eðalhasar sem er í takt við tímann og í nálægð við okkur. Sjaldan hefur maður fundið jafnmikla þörf á að sjá réttlætið sigra þótt fokið virðist í flest skjól. Lína Langsokkur lyfti hrossi. Lisbeth Salander þarf hér að eiga við mun þyngri verkefni.

Erpur Eyvindarson



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.