ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Of flókið fyrir börn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:09 › 22. febrúar 2010
Platan Algjör Sveppi - Dagur í lífi stráks

Barnaplatan Algjör Sveppi - Dagur í lífi stráks rennur ekki alveg eins ljúflega niður og ég hafði haldið. Hún vekur vissulega lukku en dóttir mín, sem elskar Sveppa, var búin að missa áhugann á henni mjög snemma við fyrstu hlustun. Ástæðuna tel ég vera þá að textarnir séu of miklir og lögin of hröð. Fyrir þriggja ára stelpu var þetta fullmikið af því góða.

Leikritið hefur hlotið stórfínar viðtökur en það byggir á barnaplötu Gísla Rúnars Jónssonar og án þess að hafa hlustað á þá plötu býst ég við að þetta sé nákvæmlega eins. Allavega minnir þessi plata mig á nokkur lög sem ég á með Gísla á vínyl. En það hefði alveg mátt breyta einhverju. Þetta virkaði ekki. Ekki fyrir okkur feðgin.

Sveppi leikur aðalhlutverkið og syngur flestöll lögin ásamt Orra Ágústssyni. Sveppi er góður söngvari og Orri líka. Ekkert undan þeim að kvarta. Þeir skila sínu. Reyndar eru nokkur lög sungin í vælutón og persónulega þoli ég það ekki.

Það er bara eitthvað þarna sem virkar ekki. Ég sé ekki að fjölskyldan fari í bíltúr og skelli þessum diski í spilarann. Birta og Bárður er enn í bílnum, Ingó Veðurguð og Bjartmar er sunginn líka. Það þarf því að vera eitthvað sérstakt til að komast í bílinn.

„Við heitum Birta og Bárður - já, Bárður og Birta í shaggadúí,“ hef ég sungið svona átta þúsund sinnum. Ég sé mig ekki syngja eitthvað af lögunum á plötunni hans Sveppa milljón sinnum á þessu ári. Því miður.

Benedikt Bóas



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.