
Edge of Darkness
Leikstjórn: Martin Campbell
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Ray Winstone, Danny Huston, Shawn Roberts, Bojana Novakovic, Frank Grillo, Gbenga Akinnagbe.
Mel Gibson leikur rannsóknarlögreglumanninn Thomas Craven sem sinnir starfi sínu í Boston. En hann hefur ekki sinnt dóttur sinni sem skyldi og er þegar hér kemur við sögu að bæta úr því með hana í heimsókn. Það amar eitthvað að henni sem fellur fljótt í skuggann af því þegar hún er myrt af misgáningi að því er virðist.
Starfsfélagar Thomasar heita honum fullum stuðningi umfram skyldur við venjulega borgara eins og manni skilst að tíðkist í ýmsum lögregluembættum. En þegar á hólminn er komið virðist málið vera á þeim skala að hann verður að treysta á sjálfan sig fyrst og fremst. Skítugir gróðahagsmunir vopnaframleiðenda, ríkisstjórnar Bandaríkjanna og apparattsins sem grær kringum það leynimakk eru ekki léttvægir og miskunnarleysið er algert.
Craven fær þó aðstoð úr ólíklegustu átt sem erfitt er að meta hvort sé raunveruleg eða lævi blandin. Þetta er fullkomin jarðvegur fyrir eðal hasar sem er eins ófyrirsjáanlegur og á verður kosið. Craven sem hefur þjónað kerfinu alla sína ævi finnur það nú skella á sér með viðbjóðslegu óbragði banvænnar spillingar. Hetjan ein gegn öllum illum öflum, réttlætið umkringt og baráttan er hörð.
Allur hasar er skotheldur í blóðugum útfærslum sem innsiglar stöðuga spennuna. Mel Gibson er svo sannarlega kominn aftur og menn geta gleymt öllum samlíkingum við dægurlögguhlutverk hans í Lethal Weapon. Gibson leikur sitt hlutverk af kostgæfni og Edge of Darkness myndar hér gott gallerý af fleiri mögnuðum týpum. Hinn breski Ray Winstone kemur inn sem hreingerningarskúrkur þeirra sem stunda hluti sem þola enga dagsbirtu. Raunverulega smeðjulegir lögfræðingar, þingmenn, athafnamenn og harðar löggur sem umhverfast í sultu þegar þeir mæta hinum raunverulegu ljótu köllum í öllu sínu smjörgreidda veldi.
Myndin er um baráttu við einmitt þessa verulega vondu kalla, ekki Disney-illmenni með túrban öskrandi óskiljanleg slagorð og étandi börn, heldur hina raunverulega ljótu kalla sem sleppa í krafti peninga, hagsmuna, almannatengslafulltrúa og sterkra tengsla við valdamenn. Campbell hefur m.a. leikstýrt James Bond myndum með fínum árangri. En hér eru það vinnuveitendur James Bond sem skal refsað fyrir sína hræðilegu glæpi í bestu mynd Martins Campbell hingað til... Og sjaldan hefur vondi kallinn átt jafn grimma hefnd skilið.
Erpur Eyvindarson





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Mér finnst verið að segja að Eddan sé meiri en Emmy“
„Ekki besta vinnan til að vera þunnur í“
Depardieu leikur Strauss-Kahn
Klámið hans Spielbergs
Leikur í stórmynd Steven Spielberg