ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Útrásaráramótaþynnkan

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:00 › 6. janúar 2010
Áramótaskaup Sjónvarpsins 2009

Sannleikskorn er í því sem þula Sjónvarpsins sagði fyrir sýningu áramótaskaupsins síðastliðið gamlárskvöld, að þeir sem hafa smakkað áfengi séu ekki dómbærir á gæði þess. Eftir að hafa hlegið nokkuð hressilega yfir skaupinu það kvöld horfði ég því aftur á það á netinu fyrir ritun þessara lína. En þrátt fyrir að hafa ekki fundist þessi árlegi dagskrárliður RÚV alveg jafn vel heppnaður á tölvuskjá á sunnudagseftirmiðdegi og í glaðbeittu og kenndu margmenninu á síðasta kvöldi nýliðins ár er mín niðurstaða að þetta sé mjög vel heppnað skaup.

Eins og vænta mátti voru endalok góðærisins og eftirköst þess rauði þráður skaupsins. Tónninn sleginn í upphafi þar sem lúxusþyrla var í björtu báli í túnfæti Bessastaða, Remax-söluskilti skammt þar frá og Bónusfána flaggað í heila en þeim íslenska í hálfa á bæjarhlaðinu. Og þegar inn í forsetabústaðinn var komið blasti við ófögur sjón. Partígestir og veisluföng lágu eins og hráviði um alla höllina og fjallkonan kefluð og hlekkjuð eins og Kristur á krossinum. Vísanir í eina vinsælustu kvikmynd ársins, sem heitir hinu táknræna nafni Hangover, eru einnig á víð og dreif í sviðsetningu ástandsins sem nokkrum sinnum var horfið aftur til í prógramminu.

Margir voru gerðir að skotspæni skaupsins sem fyrr en verstu útreiðina fengu vafalaust Sigmundur Ernir, Margrét Tryggva, Bjarni Ármanns, Sigurjón Árna og forseti vor sem sumir kalla nú sjaldan annað en klappstýru útrásarinnar, verðskuldað að mörgu leyti. Heppnuðust þau skot vel og voru frekar föst, verðskuldað. En á meðan sumir útrásarpésar voru dregnir sundur og saman í háði voru aðrir í stikki allan tímann, til að mynda Kaupþingsfóstbræðurnir fyrrverandi, silfurhærði Glitnisforstjórinn og Hannes Smára. Hvað þann síðastnefnda varðar fannst handritshöfundum kannski nóg gert þegar hans persóna var undir og yfir og allt um kring í skaupinu fyrir tveimur eða þremur árum.

Þetta var svolítið skrítið skaup þar sem árin 2008 og 2009 voru eiginlega bæði undir. Til marks um það hefði nokkur hluti þess alveg gengið upp í skaupi síðasta árs. Þetta er eðlilegt þar sem hrunið átti sér stað frekar seint á síðasta ári og er atburður af slíkri stærðargráðu að engan skyldi undra þó útrásarvofan geri sig heimankomna í skaupum næstu ára. Einhverjir kunna að fetta fingur út í að þeir sem ekki eru að minnsta kosti temmilega vel inni í þjóðmálunum, þar á meðal börn og unglingar, hafi fengið heldur lítið fyrir sinn snúð að þessu sinni, sem er líklegast rétt. En hráefni áramótaskaupsins hverju sinni er og á að vera það sem hæst hefur borið í þjóðmálunum á árinu. Þeir sem vilja sjá börnum sínum skemmt verða að leita annað en í þennan þjóðarspéspegil. En nefna skal að þeir brandarar sem ekki sneru að hápólitískum eða útrásartengdum málum voru margir sprenghlægilegir, eins og ölvun Sigmundar Ernis, „forsetareiðin“ á hné ömmunnar og KSÍ og „kellingarnar“ svo dæmi séu tekin.

Leikarar stóðu sig almennt vel og eftirhermuhlutverk líklega eins vel mönnuð og kostur er á eins og í skaupum síðustu ára. Auðvitað er enginn betri í að leika Ólaf Ragnar og Guðna Ágústsson en Jóhannes Kristjánsson en hann hefur væntanlega ekki átt heimangengt að þessu sinni af heilsufarsástæðum. En var ekki hægt að fá einhvern líkari Bjarna Ben en Baldur Trausta? Svo mætti Ari Eldjárn, einn handritshöfundanna, alveg leika Bubba næst þar sem enginn gerir það betur.

Ekki man ég hvenær mér fannst síðast tvö skaup í röð mjög góð. Sú staðreynd veit á gott frá mínum bæjardyrum séð. Nú er bara að vona að einhver af eldri kynslóðinni í röðum viðurkenndra húmorista þjóðarinnar fái ekki leikstjórakeflið á ný á næsta ári. Áramótaskaupið 2009 er enn ein staðfesting þess að það er löngu kominn tími til að hleypa nýju blóði og nýrri kynslóð að kjötkötlunum í skemmtidagskrá Sjónvarpsins. Og hvað mælir gegn því að úthluta til dæmis Gunnari Birni Guðmundssyni og því teymi sem vann að þessu vel heppnaða skaupi 25 mínútna slotti á laugardagskvöldum næsta vetur og spara þá á móti með því að taka annan dagskrárlið þann dag af dagskrá?

Kristján Hrafn Guðmundsson



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?