
Dauðrabýlið
Höfundur: Patricia Cornwell
Útgefandi: Bókafélagið Ugla
Þýðandi: Atli Magnússon
* * * 1/2
Ellefu ára stúlka, Emily Steiner, finnst myrt á víðavangi skammt frá Black Mountain, heimabæ sínum í Norður-Karólínu. Bærinn er lítill og sjalfdgæft að lögregla þar þurfi að glíma við morðmál, sem í þokkabót ber merki kynferðislegrar misnotkunar. Réttarmeinafræðingurinn Kay Scarpetta mætir á svæðið því hana grunar að ódæðismaðurinn að baki morðinu sé illræmdur kynferðisglæpamaður sem hún hefur elst við í þó nokkurn tíma. En ekki er allt sem sýnist og lengi vel ráfar Scarpetta um á rangri slóð. Hún hnýtur að lokum um lausnina þar sem hún kannar vísbendingar á Dauðrabýlinu; rannsóknaraðstöðu Alríkislögreglunnar, þar sem rannsökuð er rotnun líka og áhrif utanaðkomandi þátta þar á.
Ég viðurkenni fúslega að ég hef lesið þó nokkrar bóka höfundarins, Patriciu Cornwell, og er þar af leiðandi orðinn nokkuð kunnugur Kay Scarpetta og fjölskylduhögum hennar, sem oftar en ekki blandast inn í rannsóknir hennar. Bækurnar um Scarpetta eru í anda sjónvarpsþáttanna Síessæ, og líkt og í þeim finnst lausnin gjarna í einu hári eða tári, og eiginlegri rannsóknarlögreglu sést vart bregða fyrir, ef undan er talinn Pete Marino, önugur og grófur, en þó trygglyndið uppmálað.
Enn sem komið er hef ég ekki orðið fyrir vonbrigðum með söguþráð þann sem Patriciu Cornwell tekst að sjóða upp. Mér reynist yfirleitt létt að horfa fram hjá einstaka agnúum í úrvinnslunni og ýta til hliðar vangaveltum um hvers vegna réttarmeinafræðingur er að yfirheyra vitni og viðkomandi einstaklinga í stað þess að rannsaka sýni á þar til gerðri rannsóknarstofu. Hver veit, kannski er yfirheyrsla einmitt í verkahring réttarmeinafræðinga í Virginíu-fylki. Ágætis spennusaga og áhugaverður vinkill í sögulok.
Kolbeinn Þorsteinsson



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Bókmenntaumfjöllun um Váfugl vekur athygli
Raunveruleg hætta
„Hann lagði okkur í ræsið á hverri síðu“
Forsetaframboð eykur eftirspurn
„Grettir hefði líklega endað sem handrukkari á örorku“
