ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

„Lattelepjandi aumingjar á listamannalaunum“

„Við afnemum þetta undir eins“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:52 › 16. febrúar 2012

Listamannalaunin vekja alltaf einhverja athygli á hverju ári þegar tilkynnt er hverjir hljóta þau. Eru skiptar skoðanir um fyrirkomulagið en í ár fengu 217 einstaklingar/hópar listamannalaun úthlutuð.

Það er rithöfundurinn og teiknarinn Hugleikur Dagsson sem gerir meðfylgjandi myndband en þar leikur hann sér að orðum Adolfs Hitlers, leikinn af Bruno Ganz í þýsku myndinni Der Untergang frá 2004, og lætur líta út fyrir að Hitler tjái sig um listamannalaunin umdeildu á Íslandi.

Sjón er sögu ríkari en það er vel þekkt á myndbandavefnum YouTube að finna myndbönd af Hitler snöggreiðast vegna einhvers málefni sem er í umræðunni þá stundina. Mjög auðvelt er að útbúa slík myndbönd en það er til að mynda hægt að gera hér.

„Við afnemum þetta undir eins. Það er algjör óþarfi að spreða í þessa aumingja alltaf,“ er meðal þess sem Hitler er sagður segja í þessu myndbandi ásamt: „Ég skil ekkert hvað Sigur Rós er að segja! Á ég að læra vonlensku núna?!“



Veistu um fyndna mynd eða myndband? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?