fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Hverjum vill Rio Tinto koma á hnén?

Ritstjórn DV
Föstudaginn 26. febrúar 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verkalýðsfélögin í álverinu í Straumsvík hafa löngum fengið orð fyrir að halda vel utan um sín mál. Það hafa þau gert með því að stuðla að sem mestum kjarabótum fyrir félagsfólk sitt bæði í kaupi og réttindum og þá einnig í öryggi og aðbúnaði. Og það sem meira er, verkalýðsfélögin hafa reynt að tryggja að ákveðið réttlæti ríkti í launadreifingunni. Þetta hefur þeim tekist bærilega í langan tíma með samstilltu félagslegu átaki, samstöðu manna innan skipulegra samtaka. Þetta fyrirkomulag hafa stjórnendur í Straumsvík almennt viðurkennt fram til þessa enda hefur ríkt um það þokkaleg sátt á Íslandi fram á þennan dag.

Vilja geta skammtað kjör og réttindi

Spuring er hvort við séum nú að verða vitni að tilraunum til að rjúfa þá sátt. Ekki af hálfu íslenskra atvinnurekenda, heldur erlendra eigenda álversins í Straumsvík. Það er nú í eigu Rio Tinto Alcan, sem kunnugt er. Á þeim bænum er lítil hrifning á tilvist verkalýðsfélaga almennt og þykir ákjósanlegra fyrirkomulag að mæta launamanninum einum á báti fremur en í félagi við aðra. Ferill fyrirtækisins erlendis ber þessu viðhorfi vott.
Veik verkalýðshreyfing þýðir launadreifing á forsendum atvinnurekandans, auk þess sem veikur mótherji leitar síður upp á dekk með ágreiningsmál. Verktökufyrirkomulag sem Rio Tinto krefst að verði innleitt í ríkari mæli en verið hefur, þýðir þannig aukin völd atvinnurekandans. Líki honum ekki verktakinn er auðvelt að losa sig við hann. Það er erfiðara að eiga við jaxla í broddi stórrar fylkingar.

Verkalýðsfélögunum vorkunn

Fyrir skömmu sótti ég upplýsingafund forsvarsmanna verkalýðsfélaganna í álverinu í Straumsvík um stöðu kjaradeilunnar þar. Á fundinum kom fram að forsvarsmennirnir höfðu áhyggjur enda umhugað um að tryggja framtíð vinnustaðarins. Þeim er vissulega vorkunn því nú glíma þeir við atvinnurekanda sem stöðugt hefur í hótunum að loka vinnustaðnum og svipta starfsfólkið þar með vinnunni, verði ekki samið einsog honum best líkar.

SA vorkunn líka

Samtök íslenskra atvinnurekenda hafa ekki alltaf verið mér að skapi, en þau mega eiga það að vilja almennt stuðla að félagslegu kjaraumhverfi. Að vísu á þetta umhverfi ekki að taka til þeirra sjálfra en látum það liggja á milli hluta að sinni. Þegar á heildina er litið hefur verið vilji af hálfu atvinnurekenda hér á landi að semja um kaup og kjör á félagslegum grunni. Þessi afstaða hefur verið mikils virði. Það þekkja þeir sem kynnst hafa raunverulegum frumskógarlögmálum einstaklingsbundinna samskipta atvinnurekenda og launafólks.
En jafnvel þótt SA hafi skilning á félagslegum samningum, á það ekki við um þann aðila sem þau starfa í umboði fyrir í Straumsvík. Ég get mér til um að símtölin frá honum hafi ekki alltaf verið auðveld fremur en við aðra þá sem kunna að skipa fyrir en ekki að hlusta. Að þessu leyti er SA því vorkunn.

Hvað er í húfi?

Þótt verkalýðsfélögunum kunni að vera vorkunn biðja þau ekki um vorkunnsemi. Aðeins skilning á því hvað það hefur í för með sér að brjóta niður félagslega aðkomu launafólks að kjarasamningum. Þann rétt eru félögin staðföst að verja og líkar mér vel sá baráttuandi sem einkennir afstöðu þeirra. Þarna eru þau að standa vaktina fyrir íslenskt samfélag í heild sinni! Sama þyrftum við að geta sagt um Samtök atvinnulífsins, að þau sýni vilja til að standa vörð um samskiptaform á vinnnumarkaði sem reynst hefur farsælt.

Raforkuverðið

Annars hef ég grunsemdir um að hótanir um lokun beinist að fleirum en skipulagðri verkalýðshreyfingu. Afkoma álversins ræðst af markaðsverði á áli, rekstrarkostnaði og síðast en ekki síst af raforkuverði.
Gæti verið að þegar allt kemur til alls þá sé það ekki bara verkalýðshreyfingunni og samtökum atvinnurekenda sem Rio Tinto vilji koma á hnén? Getur verið að á endanum sé það einn aðili til viðbótar sem ætlast sé til að knékrjúpi? Þar er ég að sjálfsögðu að tala um seljanda orkunnar, íslenska ríkið.
Það má aldrei verða að deilan verði leyst með því að stjórnvöld knékrjúpi með því að taka upp samninga um raforkuverð.

Þörf er á breiðri samstöðu í þjóðfélaginu til varnar miklum sameiginlegum félagslegum og fjárhagslegum hagsmunum. Þetta er ekki mál álversmanna einna!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Elmar Örn dæmdur í 3,5 árs fangelsi fyrir nauðganir – Sendi myndbönd af glæpnum til konunnar í pósti

Elmar Örn dæmdur í 3,5 árs fangelsi fyrir nauðganir – Sendi myndbönd af glæpnum til konunnar í pósti
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Átján rafmyntaverum lokað í Svíþjóð – Lugu að skattinum til að spara milljarða

Átján rafmyntaverum lokað í Svíþjóð – Lugu að skattinum til að spara milljarða
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?