fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

HVAR LIGGUR ÁBYRGÐ ÍSLANDS?

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. janúar 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víða um heim eru blikur á lofti.

Milljónir manna hafa flúið heimkynni sín vegna hernaðar heima fyrir. Og flóttamannavandinn vindur upp á sig, nú síðast í Kúrdistan.

Í öðru lagi eru illvirki hafin til skýjanna sem aldrei fyrr; ríki og öflugar stríðshreyfingar beita þannig kúgun og ofbeldi sem minnir á margt það versta úr myrkri fortíð. Kannski ekki að undra því þangað virðist förinni heitið. Í vikunni kom í ljós að Sádi-Arabar vilja ekki vera minni ofbeldisfantar en ISIS trúbræður þeirra og keppinautar.
Í þriðja lagi eru kjarnorkuvopn aftur á dagskrá. Eitt frumstæðasta ríki veraldarinnar gumar af tilraunum sínum við kjarnorkusprengjuna en sem kunnugt er kveðast Norður-Kóreumenn hafa sprengt í tilraunaskyni í vikunni.

Getum ekki firrt okkur ábyrgð

Í öllum tilvikum eru gerendur ofbeldisins fjarri okkur landfræðilega en ekki er þar með sagt að við getum firrt okkur ábyrgð. Á vandamálum stríðshrjáðs heims eru ekki alltaf til einfaldar lausnir en þær eru þó til oftar en margir vilja vera láta. Ef allir litu í eigin barm og tækju á þeim hluta vandans sem er að finna heima fyrir má ætla að við byrjuðum á því að þokast fram á við.

Flóttamannavandinn

Ég efast ekki um að það er erfitt fyrir smáríkið Ísland að hafa sig yfirleitt í frammi á fundum hernaðarbandalagsins NATÓ þar sem ákvarðanir eru teknar. Enda mun hafa farið lítið fyrir okkar mönnum á NATÓ-fundinum í Brussel í júlílok þegar Tyrkir fengu grænt ljós á að ráðast á Kúrda til að veikja réttindabaráttu þeirra í Tyrklandi.
Allir sem til þekkja vita að allar götur frá því flokkur Erdogans forseta missti meirihluta sinn í þingkosningum í Tyrklandi um miðjan júní hafa stjórnvöld staðið fyrir ofbeldishrinu gegn Kúrdum til þess að eyðileggja friðarferli sem nú hefur varað um nokkurra missera skeið og orðið til þess að Tyrkir almennt voru farnir að líta Kúrda jákvæðari augum en áður. Á ofbeldisöldunni sem Erdogan skóp, reið flokkur hans síðan til valda að nýju með hreinan meirihluta í þingkosningum í byrjun nóvember. Í kjölfar kosninganna hefur enn verið hert á ofsóknum gegn Kúrdum í austurhluta Tyrklands. Í neyðarkalli sem nýlega barst frá kúrdískum verkalýðssamtökum segir að tvö hundruð þúsund manns hafi þurft að flýja heimili sín af völdum þessa ofbeldis. Ef ekki verður lát á má ætla að þetta flóttafólk leiti norður á bóginn.

Hvernig væri að erindrekar ríkisstjórnar Íslands hreyfðu þessu máli á næsta NATÓ-fundi? Og það með afdráttarlausum hætti! Það yrði lóð á þá vogarskál að draga úr flóttamannavandanum.

Illvirki bandalagsríkja

Ýmsar kenningar eru uppi um hvað valdi fjöldaaftökunum í Sádi-Arabíu í byrjun árs. Sumir telja Sádi-Araba vilja hleypa upp nýgerðu samkomulagi Bandaríkjanna og Írans, aðrir að þetta sé liður í innbyrðis valdaátökum mismunandi hópa innan Sunni-hreyfingar Múhameðstrúar og snúist um ítök í arabaheiminum. Enn fleiri skýringar eru uppi.
Það sem ég tel hins vegar að við eigum að staðnæmast við, er að ofbeldið í Sádi-Arabíu er látið óátalið af hálfu bandalagsríkja Íslands og ekkert slíkra ríkja hefur gagnrýnt Bandaríkjastjórn fyrir umfangsmestu vopnasölusamninga til Sádi-Arabíu í sögunni en síðustu samningarnir voru undirritaðir fáeinum dögum fyrir fjöldaaftökurnar.
Ef ISIS samtökin hefðu myrt fjörutíu og sjö fanga á einum degi í höfuðvígi sínu í Raqqa í Sýrlandi og flesta með því að höggva af þeim höfuðið hefði verið rekið upp ramakvein í okkar heimshluta. En þegar slíkt gerist í Ryad í Sádi-Arabíu – bandalagsríkinu góða, heyrist hvorki hósti né stuna. Og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lætur við það eitt sitja að fordæma árás á sendiráð Sádi-Arabíu í Íran.
Hergagnasamningar Bandaríkjanna hafa verið gagnrýndir af hálfu Amnesty International sem segir þá brot á ATT samningunum sem kveða á um að sala á vopnum sem vitað er að beitt sé gegn óbreyttum borgurum skuli teljast ólögleg. Alþjóðanefnd Rauða krossins hefur gert lista yfir eitt hundrað árásir Sádi-Araba á sjúkrahús í Jemen. Ekki er úr háum siðferðissöðli að detta fyrir Bandaríkjamenn því sjálfir hafa þeir tekið þátt í árásum á saklausa borgara með drónum í Jemen og víðar.
Hvernig væri að erindrekar ríkisstjórnar Íslands hreyfðu þessu máli á næsta NATÓ-fundi? Og það með afdráttarlausum hætti!

Kjarnorkusprengjan og við

Árið 1970 gekk í gildi samningur um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna. Þessi samningur endurspeglar vel völdin í heiminum. Hann kveður á um að óátalið sé að fimm ríki hafi kjarnorkusprengjur í vopnabúrum sínum og vel að merkja þetta eru ríkin sem ráða lögum og lofum hjá Sameinuðu þjóðunum með fastafulltrúa í Öryggisráðinu: Bandaríkin, Rússland, Kína, Frakkland og Bretland. Ekki hafa öll ríki heims undirgengist samkomulagið, ekki Indland, Pakistan, Súdan og Ísrael en þrjú þessara ríkja hafa komið sér upp kjarnorkuvopnum að því er talið er. Norður-Kórea sagði sig frá samkomulaginu árið 2003 og við þekkjum eftirleikinn sem síðast var staðfestur í vikunni.
Hvernig væri að kjarnorkuveldin horfðust í augu við að aldrei, ekki undir neinum kringumstæðum, yrði forsvaranlegt að beita kjarnorkuvopnum, hvorki í sókn né í vörn og að þeim beri að eyða eigin vopnum.
Hvernig væri að erindrekar ríkisstjórnar Íslands töluðu slíku máli innan NATÓ og annars staðar?

Engin lausn án lýðræðis.

Ég hef reyndar ekki trú á því að orð okkar á fundum NATÓ breyttu einhverju en við gætum sýnt vilja okkar í verki með því að ganga út úr bandalaginu eftir að á þetta hefur verið látið reyna án árangurs.
Og varðandi hinar einföldu lausnir sem vikið var að í upphafi, þá rúmast þær undir regnhlífinni lýðræði. Það er umhugsunarvert að lausnir stórveldanna á taflborði sýrlenskra valdastjórnmála, svo nærtækasta dæmið sé notað, snúast aldrei um þetta hugtak heldur hvað komi hagsmunum viðkomandi stórveldis best.
Hvernig væri að Íslendingar gerðust málsvarar lýðræðisins, að allar friðartilraunir miðist við lýðræðislegar lausnir, ekki hagsmuni Assads og Pútíns, Obamas eða Erdogans, hvað þá þeirra sem kunna það eitt að drepa andstæðinga sína með sveðjum?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Svona var byrjunarliðið þegar Manchester United mætti Coventry síðast

Svona var byrjunarliðið þegar Manchester United mætti Coventry síðast
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Fáránlegt athæfi BMW-eiganda í umferðinni – Smaug á milli tveggja bifreiða á tvíbreiðum vegi

Fáránlegt athæfi BMW-eiganda í umferðinni – Smaug á milli tveggja bifreiða á tvíbreiðum vegi
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal

Tottenham vill fyrrum leikmann Arsenal
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Landsréttur mildaði dóm yfir ungum stórsmyglara

Landsréttur mildaði dóm yfir ungum stórsmyglara
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Elmar Örn dæmdur í 3,5 árs fangelsi fyrir nauðganir – Sendi myndbönd af glæpnum til konunnar í pósti

Elmar Örn dæmdur í 3,5 árs fangelsi fyrir nauðganir – Sendi myndbönd af glæpnum til konunnar í pósti
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“

Garnacho bað Ten Hag afsökunar – „Hann verður að læra mikið og hratt“