fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Hundamenn, og kattamenn eins og við Fischer

Þér að segja

Ritstjórn DV
Föstudaginn 29. janúar 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er alltaf gaman að velta fyrir sér hunda- og kattafólki og jafnvel muninum á því ef einhver er. Sjálfur er ég kattamaður, en skil samt hundaaðdáendur vel, ég hef kynnst þannig dýrum og veit að það er ekki annað hægt en að hrífast af karakter, visku, trygglyndi og vináttu góðra hunda. Ég held það sé algengara að þeir sem mest hafi umgengist hunda eigi erfitt með að skilja hvað það er sem við kattafólkið sjáum við okkar dýr; hundamenn skilja sumir ekki hvað geti verið spennandi við ferfætlinga sem ekki láta að stjórn fyrir nokkurn mun, er hvorki hægt að siga eða skipa fyrir, elta ekki auðsveipir sinn eiganda og bera svosem ekkert sérstaka lotningu fyrir honum; ég held að þeir sem kynnst hafi köttum viti að þeir telji sig nú svona gegnumsneitt yfir mannfólkið hafna. Og að vinátta við fólk felist í því að þeir útvelja sumar manneskjur sem nógu verðugar til að fá að annast sig.

Mannjöfnuður

Maður hefur stundum séð í blaðagreinum og ýmsu káseríi gerðan samjöfnuð á frægum hunda- og kattavinum, og þá hefur yfirleitt hallað mjög á hundamenn; dregnar eru upp frægar jákvæðar persónur sem aðhylltust ketti eins og Hemingway, Churchill og frægir húmanistar og þeim stillt andspænis þekktum hundamönnum á borð við Hitler og Stalín. Þetta er að vísu í gríni gert, en ekki minna ósanngjarnt fyrir það, segi ég af eigin reynslu sem aldavinur margra hundaeigenda sem jafnframt eru gegnheilt og gott fólk og eiga ekkert skylt við þau áðurnefndu fól sem þarna eru nefnd. Hinu er ekki að neita að stundum kemur fólk manni notalega á óvart með því að reynast hafa fallegt næmi fyrir dýrum, og það jafnvel hinir, í fljótu bragði, ólíklegustu menn. Og það kom mér í hug þegar ég las á dögunum stórgóða nýja bók Garðars Sverrissonar sem heitir „Yfir farinn veg með Bobby Fischer“ og fjallar um vináttu þeirra tveggja. Þar segir Garðar meðal annars frá gönguferð þeirra tveggja um Bústaðahverfið, en þetta var þegar farið var að halla undan fæti með heilsu Bobbys; hann var orðinn mæðinn og fullur verkja, og pirraður eins og slíku fylgir gjarnan; farinn að þusa. Og þar segir:

Kattahjalið

„Heilsubótargangan var að snúast upp í hreina píslargöngu þegar lítill svartur og hvítur köttur varð á vegi okkar á miðjum göngustíg í brekkunni niður að Sogavegi. Bobby hægði á ferðinni og bað mig að fara varlega. Kettir vilja engan æsing.

Við námum staðar og kisan líka. Bobby beygði sig og rétti fram hendurnar. Um leið gaf hann frá sér lágvært hljóð – einhvers konar kattahljóð, og um stund horfðust þau í augu, kisan og Bobby. En þá tók kisa skyndilega á rás og stökk inn í nærliggjandi garð, ógirtan og settist þar á neðstu tröppu við málmklætt steinhús.

Þannig fór um sjóferð þá, hugsaði ég og bjóst til að halda áfram göngunni. En í stað þess að halda áfram skálmaði Bobby inn í sjálfan garðinn og alla leið að tröppum hússins. Þar beygði hann sig á ný niður til kisu sem sat nú róleg og leyfði honum að strjúka sér varlega. Og nú tóku þau til við að hjala hvort til annars á mér öldungis framandi kattamáli. Á meðan þessu fór fram stóð ég álengdar og beið talsverða stund, logandi smeykur um að húsráðendur kæmu auga á Bobby, sem virtist ekki hafa af því nokkrar einustu áhyggjur. Þvert á móti virtist færast yfir hann stóísk ró, uns þau höfðu lokið kattatali sínu og Bobby sneri til baka ljómandi af innilegri gleði.

Við héldum áfram göngu okkar. Í stað þess að ræða frekar eðli Íslendinga fannst okkur nú uppbyggilegra að ræða betur eðli katta. Bobby sagði mér að á æskuárunum heima í Brooklyn hefði hann átt nokkra ketti og það væru einhver yndislegustu dýr sem hann hefði kynnst, miklu klókari og tilfinningaríkari en menn héldu, ekki síst í samskiptum við okkur mennina. Þessi ár hefði hann sífellt verið að læra eitthvað nýtt um kettina, útsjónarsemi þeirra og spaugileg uppátæki. Tíndi hann til fjölmörg dæmi þar um og hló innilega, alveg sérstaklega þó að kettinum sem alltaf vildi stökkva upp á borð til að rýna í flóknar skákstöður með honum.“

„Yfir farinn veg …“ með Garðari og Bobby

Eins og ég nefndi er bók þessi með ágætum, og oft á tíðum afar merkileg og næm mannlýsing sem þar er dregin upp. Það leituðu á mig efasemdir undir lok bókar, eftir að lýst hafði áður verið í löngu máli hve annt Bobby Fischer var um einkalíf sitt – sín prívatmál sem hann vildi ekki deila með neinum nema kannski sínum allra nánustu – af hve útmálandi nákvæmni Garðar segir frá veikindum hans undir lokin, þvagleggjum og tilheyrandi, en ég legg annars ekki á það neinn dóm – höfundurinn hlýtur sjálfur að hafa velt þessu mjög vel fyrir sér áður en hann skrifaði lokakaflana. En eins og ég nefndi þá fær maður við lestur bókarinnar um margt nýja sýn á þennan sérvitra snilling, með sín einþykku og ósveigjanlegu sjónarmið – til að mynda allt aðra sýn en maður hafði eftir að hafa séð nýlega heimildamynd um skákmeistarann sáluga, og samskipti hans við vin sinn Sæma rokk. Af blöðum bókarinnar birtist miklu manneskjulegri mynd, af gamansömum og djúpþenkjandi manni, með fleiri víddir í sinni persónu en við blöstu. Ég var reyndar búinn að fá nasasjón af þessu sama af lestri bókar um heimsmeistarann sáluga sem kom út fyrir svona tveimur árum, og Helgi Ólafsson stórmeistari skrifaði á ensku. Þar eru meðal annars mjög skemmtilegar frásagnir af veiðiferðum þeirra tveggja í slagtogi við Jóhann Sigurðarson leikara, sem Fischer kallaði alltaf Big Joe. Í kvöldsamkomum veiðiskálanna var eins og gengur gjarnan dreginn upp gítar og menn sungu saman vinsæl lög, en eins margir vita er Jóhann mikill söngvari, og hefur troðið upp í stórhlutverkum í helstu klassísku söngleikjunum í Þjóðleikhúsinu. Það breytti þó ekki því að skákmeistarinn kunni lögin og textana ekki síður en leikarinn og söng ekki af minni innlifun, og lét sig heldur ekki muna um að leiðbeina stórsöngvaranum að auki dálítið um flutninginn.

Uppáfindíngarleysið

En við vorum að tala um ketti og hunda. Halldór Laxness var hundamaður eins og flestir vita, og það sama sumar frægar persónur úr bókum hans, eins og Bjartur í Sumarhúsum. Það er samt í bókinni um Bjart, Sjálfstætt fólk, sem er ein af mínum uppáhalds kattafrásögnum í íslenskum bókmenntum. Það var eftir „reimleikana“ í fjárhúsum Bjarts, sem hann hélt fyrst vera rottugang og fór á bæi að ná sér í fresskött; „má vera grimmur.“ Það fer svo á bænum að kötturinn vill helst hvergi vera nema í horninu hjá ömmu gömlu, Hallberu, og það jafnt þótt hún eigi aldrei hlýlegt orð handa kettinum, og velji honum aldrei önnur sæmdarheiti en grey, garmur, skarn eða skratti. En kötturinn kærir sig kollóttan um það, því eins og höfundurinn segir, af innsýn sinni í sálarlíf manna og dýra, þá kunni kötturinn að meta höfuðkost ellinnar, sem er uppáfindíngarleysið.

Þveröfug tjáning

Eins og fólk veit þá hafa hundar og kettir mjög ólíkt, eða eiginlega gagnstætt, táknmál að ýmsu leyti; þegar hundar dilla skottinu eru þeir glaðir, en þegar kettir gera slíkt hið sama eru þeir í árásarhug; að sama skapi hefur þveröfuga merkingu að horfast í augu við hunda eða ketti. Þetta er meðal annars ástæðan fyrir því að allt vill fara í hund og kött þegar þessi dýr hittast. Samt eru mörg dæmi um að hundur og köttur þrífist saman, og þá byggir það algerlega á því að hundurinn upplifi sig sem lægra settan en köttinn. Hundar eru hópdýr, og verða að vita stöðu sína í goggunarröðinni til þess að þeim líði vel, og þeim líður ekkert illa með það að vera lágt settir, það veitir þeim bara öryggistilfinningu að vera neðstir í röðinni, og það jafnt þótt einstaklingar af tegundum eins og menn eða kettir séu ofar. Hafi hundur hins vegar þá hugmynd að hann sé skipaður hærra en köttur, þá byrja vandræðin; köttur getur aldrei sætt sig við að hundur ætli að ráðskast með hann; þá setur hann út klær og hvæsir og veinar.

Mælamaðurinn

Þar sem ég er alinn upp við ketti þá misskil ég stundum í fljótu bragði atferli hunda, og það þótt sé um að ræða þá miklu ljúflinga sem vinir mínir eiga. Einn vinur minn bjó utan borgarmarka og hafði þar risastóran úlfhund, þýskan schaefer. Jafnan þegar ég renndi í hlað kom sjefferinn æðandi til mín með miklum gleðislætti sem í fljótu bragði fyrir kattamann gat virst dálítið skerí. Eigandinn sagði stoltur: „Ef einhverjir ætluðu að koma hingað með innbrot eða annað vesen í huga, myndu þeir hugsa sig um tvisvar þegar þeir sæju dýrið standa hér á pallinum.“ Og þar hafði eigandinn örugglega rétt fyrir sér. En hann bætti því við svona í trúnaði að hins vegar þegar ókunnugir menn stigju út úr bílnum og gengju óhikað upp að húsinu, eins og til dæmis sá sem kæmi frá Orkuveitunni að lesa á mælana, þá lúskraðist hundurinn upp í móa og léti ekki sjá sig fyrr en mælamaðurinn æki aftur á braut.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag

Besta deild kvenna fer af stað með látum á sunnudag
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað

Dæmd fyrir líkamsárás á hvort annað
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni

Varpa fram kenningu um hvarf Émile sem gæti kollvarpað rannsókninni
Eyjan
Fyrir 7 klukkutímum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu

Aðstoðarmaður Klopp með spennandi tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum
Hartman í Val