Nú fara knattspyrnuáhugamenn heldur betur að setja sig í stellingar fyrir HM í Rússlandi. Eðlilegt er að margir séu löngu farnir að spá í spilin fyrir útkomu keppninnar en þeirra á meðal má nefna heyrnarlausa, bláeygða kattardýrið Achilles, sem notast við eigin hæfileika, enda högninn talinn vera skyggn og klókari en útlit er fyrir.
Aðferð kattarins fer þannig fram að lagðar eru tvær keimlíkar matarskálar fyrir framan dýrið með sitthvorum landsfánanum. Sú skál sem Achilles snæðir fyrst úr mun gefa til kynna hvaða lið mun sigra.
Achilles er búsettur á Hermitage-safninu í Skt. Pétursborg. Kötturinn er víst þjálfaður daglega af dýralækni sínum, Önnu Kasatkina, sem hefur sagt að stærsti kostur dýrsins sé einfaldlega hlutleysi hans, auk þess að Achilles væri með stórbrotið innsæi og sæi með hjartanu.
Achilles hefur áður spáð í útkomur knattspyrnumóta borgarinnar og hefur margsinnis skotið á rétt svar í gegnum árin. Kom því ekki annað til greina en að leggja fyrir honum þá tröllaþraut sem fylgir því að spá í svo stórt mót sem HM.
Fréttamiðillinn Reuters fjallaði um málið, eins og sjá má að neðan.
Veterinarians in St. Petersburg are warming up for the FIFA #WorldCup by training Achilles the cat to pick the big winner pic.twitter.com/WxRn9iffWH
— Reuters Top News (@Reuters) June 10, 2018