79 ára var elsta fórnarlamb mexíkóska morðkvendisins Juönu Barraza. Juana leitaði fórnarlamba á meðal aldraðra kvenna í Mexíkó-borg á árunum 2002–2006. Ástæðan ku hafa verið óviðráðanleg fyrirlitning hennar í garð móður sinnar. Þegar upp var staðið hafði hún myrt í það minnsta ellefu konur. Fyrir vikið fékk Juana 759 ára fangelsisdóm árið 2008.
2. febrúar, 1988, fékk Laura nokkur Black tímabundið nálgunarbann á vinnufélaga sinn, Richard Wade Farley. Honum hafði reynst fyrirmunað að skilja að hún vildi ekkert með hann hafa í öðru samhengi. Nálgunarbannið reyndist skammgóður vermir, því 16. febrúar gekk Farley berserksgang í vinnunni, varð sjö manns að bana og særði fjóra, þar á meðal Lauru Black. Farley fékk dauðadóm.