fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Þau komust lífs af úr vonlausum aðstæðum

Ritstjórn DV
Laugardaginn 31. mars 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Náttúran á það til að vera óútreiknanleg og ef þú týnist úti í óbyggðum gæti voðinn verið vís. Sumir virðast þó vera heppnari en aðrir þegar kemur að því að komast lífs af úr vonlausum aðstæðum. Hér að neðan eru fjögur dæmi um einstaklinga sem komust heil heilsu, eða því sem næst, úr hrikalegum aðstæðum.

Týndur í óbyggðum í tvo mánuði

Í janúar 2006 var Ricky Megee á ferð í bíl sínum um Norðurhéröð Ástralíu. Skyndilega kom hann auga á þrjá menn við vegkantinn sem augljóslega voru í vanda, eða hvað? Mennirnir sögðu að bíll þeirra hefði orðið bensínlaus en í sannleika sagt voru þeir bíræfnir ræningjar sem réðust á Ricky, börðu hann, rændu og stálu af honum bílnum. Þeir skyldu hann svo eftir rænulausan úti í óbyggðum. Tveimur dögum síðar hafði enginn orðið á vegi hans og neyddist hann til að drekka eigið þvag. Á fimmta degi fann hann fyrst eitthvað ætilegt þegar hann rakst á litla tjörn. Þar fann hann froska, pöddur og vatn. Ricky varð máttfarnari með hverjum deginum sem leið og liðu tveir mánuðir þar til hann komst aftur til byggða. Megee, sem var 105 kíló, þegar hrottarnir urðu á vegi hans léttist mikið. Hann var 45 kíló þegar hann fannst.

Hrapaði niður fjallið

Joe Simpson og Simon Yates voru miklir göngugarpar og árið 1985 reyndu þeir að klifra upp Siula Grande í Andes-fjöllunum – ógnarstórt fjall og erfitt yfirferðar. Simpson og Yates tókst ætlunarverkið en á leiðinni niður dundu ósköpin yfir. Simpson fótbrotnaði og til að gera langa sögu stutta reyndi Simpson að koma vini sínum til bjargar og láta hann síga niður fjallið. Joe rann síðan niður fjallið og hékk í línu fram af klettabrún. Þá voru góð ráð dýr fyrir Simon sem sá sig knúinn til að skera á línuna til að bjarga sjálfum sér frá vísum dauða. Joe hrapaði niður fjallið og ofan í stóra sprungu sem gleypti hann. Joe var ekki af baki dottinn, fótbrotinn, kaldur og slasaður, því honum tókst að skríða niður fjallið, matar- og drykkjarlaus. Ferðalagið tók hann þrjá daga. Um þetta ótrúlega atvik var gerð myndin Touching the Void sem kom út árið 2003.

Flúði frá nasistum

Jan Baalsrud var Norðmaður sem þótti býsna harður í horn að taka. Á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar barðist Jan gegn þýskum nasistum og skaut nokkra til bana í skotbardaga í Noregi. Hann var eftirlýstur í kjölfarið og lagði á flótta. En, hann fór ekki á bíl, í flugvél eða með lest. Hann fór fótgangandi og lagði í gönguferð til Svíþjóðar þar sem hann kæmist í skjól frá nasistunum. Á ferðalagi sínu lenti hann í ýmsum ævintýrum, snjóflóði til dæmis. Hann gafst ekki upp, óð snjó upp fyrir hné í fimbulkulda og gekk uns hann komst til Svíþjóðar tveimur mánuðum eftir að ferðalagið hófst. Hann vó rétt tæp 40 kíló þegar hann komst á leiðarenda, í þorpið Furuflaten. Jan lést árið 1988, sjötugur að aldri.

Týndur í frumskóginum

Árið 1981 lenti Yossi Ghinsberg í erfiðum aðstæðum í þeim hluta Amazon-regnskógarins sem liggur í Bólivíu. Hörmungar dundu yfir þegar hann féll útbyrðis úr báti og fór niður foss, Yossi var skyndilega einn og yfirgefinn í frumskóginum. Hann var með þremur vinum sínum en varð viðskila við þá eftir slysið. Næstu vikurnar gekk Yossi um skóginn og með hverjum deginum sem leið varð vonin um björgun veikari. Hann reyndi þó allt sem hann gat; borðaði ber og egg, varðist árásum dýra og var bitinn af skordýrum. „Ég hefði borðað mannakjöt, ég var svo svangur,“ sagði Yossi eftir atvikið. Þrjár vikur liðu þar til honum var bjargað og má í raun segja að tilviljun ein hafi ráðið því að hann komst lífs af. Hann rakst á félaga sinn, Kevin, sem hafði leitað hans síðan hann hvarf. Kevin hafði gefið upp alla von um að finna vin sinn á lífi og var á leiðinni til mannabyggða þegar hann sá félaga sinn. Um slysið var gerð myndin Jungle. Í myndinni fer Daniel Radcliffe með hlutverk Yossi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Skýr merki um brotalamir við skipti dánarbúa þeirra sem eiga enga erfingja – 178 milljónir í ríkissjóð á fimm árum en hvar er eftirlitið?

Skýr merki um brotalamir við skipti dánarbúa þeirra sem eiga enga erfingja – 178 milljónir í ríkissjóð á fimm árum en hvar er eftirlitið?
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ten Hag neitar að gefast upp á sínum manni – ,,Hef fulla trú á þessum bardagamanni“

Ten Hag neitar að gefast upp á sínum manni – ,,Hef fulla trú á þessum bardagamanni“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum
Hvalur sprakk í tætlur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Truflar KR-inga ekkert að spila í Laugardalnum – „Fyrstu tveir leikirnir hafa bara verið heimaleikir“

Truflar KR-inga ekkert að spila í Laugardalnum – „Fyrstu tveir leikirnir hafa bara verið heimaleikir“
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Óhugnalegt atvik í New York: Kveikti í sér fyrir framan dómshúsið þar sem réttað var yfir Trump

Óhugnalegt atvik í New York: Kveikti í sér fyrir framan dómshúsið þar sem réttað var yfir Trump
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Voru gapandi hissa yfir sjónvarpinu í vikunni – „Ég veit ekki hvað fer í gegnum hausinn á þér“

Voru gapandi hissa yfir sjónvarpinu í vikunni – „Ég veit ekki hvað fer í gegnum hausinn á þér“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gylfi Þór hundfúll – „Það er erfitt að taka þessu“

Gylfi Þór hundfúll – „Það er erfitt að taka þessu“