40 ára piparjómfrú, Christina Edmund að nafni, varð heltekin af lækni sínum, Charles Beard. Christina, sem reyndar fullyrti að hún væri rétt skriðin yfir þrítugt, sendi lækninum eldheit ástarbréf og lét sig dreyma um að hann yfirgæfi eiginkonu sína. Þegar það gerðist ekki sendi hún eiginkonu Beard eitraða konfektmola. Eiginkonan lifði af en fjögurra ára gutti dó úr eitrun. Christina fékk lífstíðardóm.