fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Hörmuleg henging

Böðlinum William Marwood voru mislagðar hendur í síðustu aftöku sinni

Ritstjórn DV
Mánudaginn 12. febrúar 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski böðullinn William Marwood var ágætlega afkastamikill á sínum tíma. Laugardaginn 4. ágúst, 1883, gekk William inn á Dun Cow-krána í Durham í Durham-sýslu á Englandi. Innkoma hans vakti þónokkra eftirtekt og margir þeirra sem þar sátu og kneyfuðu sitt öl eða hvað það nú var vissu hver þar var á ferðinni.

Sumir vissu að hann var skósmiður og aðrir að hann hafði annað starf með höndum og í því hengt 175 manns; karlmenn og kvenmenn.

William hafði áður verið á ferð í Durham og þá gist á Dun Cow-kránni. Honum hafði líkað það vel kannski ekki síst vegna þess að þaðan var stutt í fangelsi borgarinnar.

Verkefni Williams

Í þetta sinn var erindi Williams Marwood að senda 38 ára karlmann, James Burton, yfir í eilífðina með lykkju um hálsinn. James var verkamaður frá Sunderland og hafði unnið sér það til saka að verða 18 ára eiginkonu sinni, Elizabeth, að bana tveimur og hálfum mánuði fyrr, þann 18. maí 1883.

James Burton, sem var sonur lögreglumanns, og Elizabeth höfðu verið á leið heim til föður hennar. Þegar þau voru komin til Tunstally, skammt frá Sunderland, fóru þau að rífast og lét James hendur skipta. Elizabeth launaði höggið með því að reka regnhlíf sína í kviðinn á James.

Rifrildi leiðir til morðs

Svo virðist sem James hafi gjörsamlega misst stjórn á skapi sínu því hann barði Elizabeth til bana með stórum stein. Síðan huldi hann líkið undir grjóthrúgu, en það var þó skammgóður vermir því það uppgötvaðist fljótlega.

Eftir að James var handtekinn þráaðist hann við og hélt fram sakleysi sínu. Ekki fyrr en tveimur dögum fyrir aftökuna sá hann sitt óvænna, brotnaði niður og lýsti sig sekan.

En sem sagt í ágústbyrjun var William Marwood mættur til að sjá til þess að aftakan færi fram þannig að sómi væri að. Þegar þarna var komið sögu var William farinn að reskjast, en hengingarfræðin kunni hann upp á tíu, eða svo hugðu menn, og þann 6. ágúst skyldi James finna það af eigin raun.

Ótrúlegt klúður

William Marwood reiknaðist til að hæfilegt fall fyrir James, í ljósi líkamsburða hans, væri 2,42 metrar og þar sem James stóð við fallhlerann virtist ekkert geta komið í veg fyrir eðlilegan framgang. Fallhlerinn opnaðist og fyrir einhverja ólukku sveiflaðist reipið óhemjumikið til og flæktist undir handarkrika James. Fyrir vikið hékk hann hálfur upp úr gatinu og ljóst að honum hafði liðið betur.

Með aðstoð varðar hífði William hinn dauðadæmda aftur upp á skörina og gerði upp reipið. Einnig lagaði hann hettuna á höfði James, en hún hafði losnað.

Meðan á þessu stóð var James á hnjánum og reyndi eftir bestu getu að ná andanum. William lét nú hendur standa fram úr ermum og á meðan James var í miðjum andköfum þeytti William honum niður um gatið og dró ekki af. „Guð hjálpi mér,“ voru síðustu orð James og slátturinn á reipinu slíkur að það tók böðulinn drjúga stund að stilla það.

Ekki í fyrsta sinn

Fljótt flýgur fiskisagan og þess var skammt að bíða að frásagnir af þessari vægast sagt mislukkuðu hengingu bærust þingheimi og fannst sumum ástæða til að fylgjast betur með böðlum og atgervi þeirra. Einnig var velt upp möguleikum á öðrum aðferðum til að senda dauðadæmt fólk úr jarðlífinu, til dæmis með notkun eiturs eða rafmagns. Einnig kom upp úr kafinu að William Marwood hafði fyrir ekki svo löngu klúðrað hengingu í Galway. Þá ku reipið hafa flækst og William hafa teygt annan fótinn niður í gatið og reynt að losa flækjuna með því að sparka í hana og hrópað: „Vesenið með þennan mann.“

Umfjöllun The Sunderland Echo

Í blöðum þess tíma voru leiddar að því líkur að William Marwood hefði verið við skál þegar hann hengdi James Burton. Á meðal þeirra dagblaða sem veltu þeim möguleika fyrir sér var The Sunderland Echo. Í blaðinu sagði enn fremur: „Ef Marwood gerir skó jafn afleitlega og hann hengir morðingja er ekki að undra að hann þurfi að afla sér eins eða tveggja punda aukreitis með því að gerast embættismaður krúnunnar.“ Echo bætti um betur og sagði fullum fetum að tími dauðrefsingar væri að renna sitt skeið og „tími til kominn að stíga skrefið að afnámi hennar.“

Af William Marwood er það að segja að henging James Burton var síðasta aftaka hans. Tæpum mánuði eftir aftökuna fékk hann lungnabólgu sem dró hann til dauða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

433Sport
Fyrir 10 mínútum
Hörmuleg henging

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

United vill selja en hingað til hefur ekkert félag sýnt áhuga

United vill selja en hingað til hefur ekkert félag sýnt áhuga
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rúnari hrósað í hástert – „Hefur heillað mann“

Rúnari hrósað í hástert – „Hefur heillað mann“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Pétur spurður út í Amöndu – „Það er undir henni komið“

Pétur spurður út í Amöndu – „Það er undir henni komið“