Tveir ferðalangar frá Wales voru helst til sneypulegir þegar þeir stóðu fyrir framan dómara í Queensland í Ástralíu. Ferðalöngunum, Rhys Owen Jones og Keri Mules, var, hvorum um sig, gert að greiða sem samsvarar um 90.000 íslenskum króna í sekt. Auk þess sagði dómarinn þeim að „slaka aðeins á í vodkadrykkjunni“.
Rhys og Keri höfðu, vel við skál, fengið þá snilldarhugmynd að brjótast inn í sædýrasafn í Queensland. Þar skelltu þau sér til sunds með höfrungunum, tæmdu slökkvitæki þar sem hákarlar dóluðu í makindum sínum og héldu síðan heim á leið – með mörgæsina Dirk sem ferðafélaga.
Næsta morgun vöknuðu skötuhjúin með slæma timburmenn og fagran fuglasöng var hvergi að heyra. Hins vegar vængstuttur fugl vappandi um híbýli þeirra og í tilraun til að gera sitt besta settu þau hann í sturtu.
Síðar reyndu þau að losna við Dirk með því að sleppa honum í sýki, en til þeirra sást og þau enduðu í musteri laga og réttar. Dirk var hins vegar skilað á sædýrasafnið og varð ekki meint af tilbreytingunni.