fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Banvænn blekkingaleikur

Unnusta Bretts horfði framhjá gömlum syndum – Brett skapaði nýjar

Kolbeinn Þorsteinsson
Föstudaginn 4. ágúst 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristen Baxter, frá Toronto í Kanada, taldi sig hafa fundið draumaprinsinn í Brett Ryan, 36 ára. Hann hafði reyndar fengið dóm fyrir átta bankarán á átta mánaða tímabili, 2007 til 2008, það síðasta framdi hann í júní 2008. Bankaránin hafði hann framið í gervi aldraðs manns og fékk hann fyrir vikið viðurnefnið Ræninginn með gerviskeggið.

Saksóknari hafði á þeim tíma farið fram á tíu ára dóm yfir Brett en dómarinn í málinu var á öndverðum meiði og Brett fékk þriggja ára og níu mánaða dóm og losnaði úr fangelsi árið 2011.

Léttvægar syndir

Brett og Kristen kynntust þegar hann var laus til reynslu, þau fóru að búa saman árið 2013 og trúlofuðust 2014.

Kristen vissi allt um þetta undarlega tímabil í ævi Bretts, sem hafði þá glímt við þunglyndi í kjölfar sambandsslita við aðra konu. Að mati Kristen hafði fennt yfir þetta allt saman og hún sá ekkert því til fyrirstöðu að hún og Brett gengju í það heilaga í september 2016. Stóri dagurinn nálgaðist óðfluga þegar hér var komið sögu, í ágúst 2016.

Blekkingar og lygar

En Brett átti leyndarmál sem Kristen mátti ekki komast að; leyndarmál sem móðir Bretts og bræður þekktu til. Reyndar hafði móðir hans, Susan, hvatt hann til að koma hreint fram við Kristen og leggja öll spil á borðið fyrir brúðkaupið.

Brett hafði nefnilega talið Kristen trú um að hann hefði útskrifast úr háskóla en það var ekki sannleikanum samkvæmt, því hann hafði hætt námi. Síðan hafði Brett fengið vinnu hjá fyrirtæki í upplýsingageiranum, en verið rekinn eftir að fortíð hans varð stjórnendum þar ljós.

Í stað þess að segja Kristen frá þessu öllu saman lét hann í það skína að hann stundaði vinnu sína heima við.

Brett settir afarkostir

Sem fyrr segir vildi móðir Bretts að hann gerði hreint fyrir sínum dyrum fyrir brúðkaupið og sagðist myndu styðja hann fjárhagslega, þar til úr rættist, ef hann gerði það. Hún setti reyndar syni sínum afarkosti og hótaði að upplýsa Kristen sjálf ef ekki vildi betur.

Til þess kom þó aldrei því Brett greip til sinna ráða með banvænum afleiðingum.

Eftir margra mánaða blekkingu varð ljóst að sverfa myndi til stáls, því Brett var ekki reiðubúinn til að svipta hulunni af þeim blekkingum sem hann hafði viðhaft gagnvart Kristen.

Undirbúningur

Þann 25. ágúst, 2016, tókust Brett og móðir hans á um þetta leiðindamál á heimili hennar. Síðar kom í ljós að Brett hafði af einhverjum ástæðum gert ýmsar ráðstafanir fyrir þennan fund þeirra.

Hann hafði falið lásboga í bílskúr móður sinnar og einnig sett upp iPad og iPhone á heimili sínu, sennilega til að dikta upp fjarvistarsönnun með rafrænu fótspori, sem þó aldrei var nýtt.

Susan leist ekkert á hvert rifrildið stefndi og hringdi í eldri bróður Bretts, Christopher.

Þrjú morð

Brett nýtti tækifærið og náði í lásbogann. Hann stakk móður sína með ör og kyrkti hana síðan með gulu nælonreipi. Síðan beið hann rólegur komu Christophers. Þegar Christopher kom skaut Brett hann með lásboganum og lenti örin í aftanverðu höfði hans.

Brett vafði líkin inn í segldúk og faldi þau í bílskúrnum. Að því loknu beið hann eftir yngri bróður sínum, Alexander. Þegar hann bar að garði stakk Brett hann til bana með ör.

Síðasti bróðirinn

Þriðji bróðir Bretts, Leigh, bjó hjá móður þeirra og varð var við eitthvert brambolt. Þegar hann kannaði hverju það sætti kom hann að Brett standandi yfir líkinu af Alexander í heimkeyrslunni.

Leigh snerist á hæli og hljóp inn í húsið með Brett á hælunum. Inni réðst Brett á bróður sinn sem tókst að komast undan og náði heilu og höldnu til nágrannanna.

Brett játaði á sig morðin þegar lögreglan kom á vettvang. Föstudaginn 28. júlí, 2017, fékk Brett Ryan þrefaldan lífstíðardóm og getur ekki sótt um reynslulausn fyrr en eftir 25 ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur