fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Móðir sem hló í dómsal send beint í fangelsi í 93 daga – Sjáðu myndbandið

Það er eins gott að haga sér almennilega í dómsal

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 2. mars 2017 11:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvenjulegt atvik kom upp í dómsal í Michigan í Bandaríkjunum fyrir skemmstu þegar móðir sakbornings var dæmd í fangelsi fyrir ósiðlega hegðun í dómsal.

Verið var að rétta yfir hinni 25 ára gömlu Amöndu Kosal sem var ákærð fyrir að valda dauða manns þegar hún ók undir áhrifum áfengis. Systir fórnarlambsins var að flytja ræðu þegar móðir Amöndu heyrðist flissa.

Dómaranum í málinu, Qiana Lillard, var hins vegar ekki hlátur í huga og las hún móður Amöndu pistilinn – og öðrum sem dirfðust að hlæja meðan á réttarhöldunum stóð.

„Þetta er dómsalur og hér er verið að fjalla um grafalvarlegt mál. Ég skil að þið eru reið vegna þess að ástvinur ykkar er á leið í fangelsi, en, sjáið til, hún er á leið í fangelsi vegna ákvörðunar sem hún tók. Þetta fólk hér er að syrgja ástvin vegna heimskulegrar ákvörðunar sem endaði með dauða. Og þið sitjið hér og haldið að þetta sé eitthvað grín. Ekki í dómsal 502. Ekki í dag eða nokkurn annan dag,“ sagði Qiana.

Á myndbandsupptöku má sjá þegar laganna vörður leiddi móður Amöndu burt áður en Qiana sagði: „Þessi óvirðing sem þú sýndir truflaði réttinn og þú, fröken, ferð í Wayne County-fangelsið í 93 daga.“

Þess má geta að Amanda Kosal var dæmd í 3 til 15 ára fangelsi fyrir ölvunaraksturinn í fyrrasumar sem endaði með dauða Jerome Zirker sem var 31 árs. Eiginkona hans, Brittany Johnson, slasaðist einnig alvarlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“
433
Fyrir 16 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United