fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

„Mér þykir þetta leitt“

Talinn hafa myrt allt að sex manns – Fékk þrefaldan lífstíðardóm

Kolbeinn Þorsteinsson
Laugardaginn 26. nóvember 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var ekki hátt á Richard White risið þar sem hann sat fyrir framan ættingja fórnarlamba sinna í réttarsal í Denver í Bandaríkjunum, mánudaginn 29. nóvember 2004.

„Mér þykir þetta leitt,“ sagði hann svo vart heyrðist. Fleira sagði hann ekki þegar hann var dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir morð á tveimur konum; Annaletiu Mariu Gonzales, 27 ára, og Victoriu Turpin, 34 ára.

Líkamsleifar kvennanna fundust í bakgarði heimilis Richards. Auk tvöfalds lífstíðardóms fékk Richard 144 ára dóm fyrir kynferðislegar árásir á þrjár konur sem þó sluppu með skrekkinn.

Kennsl voru borin á lík hennar um ári eftir að það fannst.
Torrey Marie Foster Kennsl voru borin á lík hennar um ári eftir að það fannst.

Rándýr

Saksóknarinn í málinu, Kerri Lombardi, fór ekki í launkofa með álit sitt á Richard White. „Hann hefur skelft ótal aðrar konur,“ sagði hún. „Richard White er rándýr. Að veiða, nauðga, kvelja og drepa þessar konur var sport í hans huga. Konur sem klukkustundum, dögum saman, sárbændu hann að þyrma lífi þeirra. Hann naut þessa pyntingaleiks sem hann hafði búið til.“

Richard hrelldi þær konur sem hann náði inn á heimili sitt við Albion-stræti 2885 í Denver. Hann sagði þeim af líkunum sem grafin voru í bakgarðinum og sagði að sennilega myndu þær einnig enda þar. Hann stakk byssuhlaupi upp í munn kvennanna á meðan hann nauðgaði þeim. Að lokum, eftir að hafa kvalið konurnar svo tímunum skipti, kyrkti Richard þær með snúru eða belti.

Þriðja líkið

„Herra White mun ekki nokkurn tímann framar líta dagsins ljós sem frjáls maður,“ sagði dómarinn, R. Michael Mullins, þegar hann kvað upp dóm yfir Richard.

Með því að semja við ákæruvaldið tókst Richard að bjarga líftórunni. Hann samþykkti að vísa lögreglunni á lík þriðju konunnar, sem hann hafði grafið í Costilla-sýslu í Colorado.

Richard hafði, í janúar 2002, tekið upp þessa konu – hávaxna, „dökka á hörund“ og blinda á hægra auga – við strætóstöð í Denver. Hún hafði, að sögn Richards, nýlega farið í hárlagningu, var með fallegar tennur og ör á öðrum framhandleggnum – og átti börn.

Richard sagði að honum hafi verið ætlað að myrða þessa konu því hann hafði húðflúr af konu sem svipaði til hennar.

Fleiri morð

Ekki tókst að bera kennsl á þetta fórnarlamb fyrr en um ári síðar þegar skrifstofa saksóknara í Denver lét útbúa skissu af andliti þess. Þá kom í ljós að konan hafði verið vitni í máli sem Jon nokkur Priest rannsóknarlögreglumaður hafði haft á sinni könnu.

Um var að ræða Torrey Marie Foster og var það staðfest með því að bera saman lífsýni úr líkinu og lífsýni úr níu ára dóttur Torrey.

En ekki voru öll kurl komin til grafar enn því Richard játaði að hafa myrt tvær konur að auki. Þær hefði hann hitt í Aurora í Colorado, myrt og fleygt líkum þeirra í á skammt frá La Junta í Otero-sýslu. Líkamsleifar þeirra hafa aldrei fundist. 

Lengi von á einum

Richard White játaði einnig að hafa myrt vin sinn og vinnufélaga, Jason Reichardt, og var það morð reyndar ástæða þess að hann var gripinn. Richard var handtekinn í september 2003 vegna morðsins á Jason Reichardt og játaði í kjölfarið á sig hin morðin, en fyrir morðið á vini sínum fékk hann enn einn lífstíðardóminn.

Verjandi Richards, Sharlene Reynolds, sagði skjólstæðing sinn geðveikan og að hann hefði svo árum skipti glímt við andleg veikindi sem ekki hefði verið tekið á. Enn fremur sagði hún að Richard væri fórnarlamb „hryllilegrar“ meðferðar í æsku – stundum hreinlega óskaði hann þess að fá dauðadóm.

Richard White varð ekki að þeirri ósk sinni, samdi enda við ákæruvaldið og mun dúsa á bak við lás og slá það sem eftir er ævinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum