Eftirtektarvert er hversu vel upp aldir ungliðar Vinstri grænna eru. Aldrei heyrist píp frá þeim varðandi hitamál í þinginu eða borgarstjórn enda eru foreldrarnir í stjórn á báðum stöðum.
Áður fyrr voru ungir sósíalistar róttækir og létu skoðanir sínar heyrast. Árið 1970 flutti Æskulýðsfylkingin af foreldraheimilinu, Alþýðubandalaginu, og stofnaði eigið bú um tíma. Allar götur síðan hafa ungliðar sósíalista verið óhræddir við að gagnrýna fulltrúa flokksins og segja sig úr honum ef svo ber undir.
UVG mótmæltu stjórnarmyndunarviðræðum haustið 2017 af veikum mætti en ekki hót meir. Síðan þá hafa þeir aðallega talað fyrir réttindum samkynhneigðra, #metoo-byltingunni, réttindum flóttafólks og gegn stríði. Allt óumdeild og þægileg mál en af nógu er að taka í óþægilegum málunum.