Falsfréttir á íslensku um ágæti Bitcoin fara nú eins og eldur í sinu um netheima. Fjölmiðlar hafa vakið athygli á málinu enda ber að upplýsa almenning um slíkar svikamyllur og hefur DV margsinnis flutt fréttir af falsfréttum á íslensku þar sem þjóðþekktir einstaklingar koma við sögu. RÚV ræddi við Elfu Ýri Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar, um málið á miðvikudag. Fjölmiðlanefnd á að hafa eftirlit með falsfréttum og hefur Elfa Ýr sjálf tekið þátt í pallborðsumræðum um falsfréttir. Því vakti það óneitanlega athygli þegar hún sagði í samtali við RÚV að hún hefði aldrei fyrr séð falsfréttir á íslensku. Það má því fullyrða að einhver fáfræði sé á ferð hjá Elfu Ýri og Fjölmiðlanefndinni.