Nú er Ríkisútvarpið að eyða milljónum í að skipta um innréttingar. Öllum skrifborðshúsgögnum er hent og keypt ný í staðinn. Lítil skrifborð og allir skápar bannaðir. Ákvörðunin kostnaðarsama byggir á nýrri stjórnunartísku sem heitir „Clean Desk Policy“. Hvergi má sjást bók eða blað. Ekki er gott að segja hvort um byltingarkennda stefnu sé að ræða sem muni bæta líðan starfsmanna Ríkisútvarpsins eða hvort um sé að ræða eitthvað stjörnugalið rugl millistjórnenda sem sólundi skattfé.