Svo virðist sem enginn vilji vinna með Miðflokknum og blasir við að flokkurinn verði áhrifalaus í íslenskum stjórnmálum næstu árin, nema í Árborg. Flokkurinn náði inn níu fulltrúum í þeim 23 sveitarfélögum sem hafa fleiri en 2.000 íbúa. Það er ekki slæmur árangur fyrir flokk sem var stofnaður árið 2017. Flokkurinn hlaut fleiri atkvæði en Framsóknarflokkurinn í sínum fyrstu alþingiskosningum en á enn langt í land með að velta fylgi þeirra í sveitarstjórnum. Á meðan Miðflokkurinn fékk níu kjörna þá fékk Framsóknarflokkurinn 32. Það vekur þó athygli að enginn vill mynda með þeim meirihluta nema í Árborg, spyrja má hvort þetta sé áframhald á einhverri Panamaskjala-geislavirkni frá Sigmundi Davíð eða hvort flokkurinn eigi bara ekki samleið með neinum, ekki í Fljótsdalshéraði, Hafnarfirði eða Akureyri.