Það kemur á óvart að Frjáls verslun gefi út tekjublað í ár þar sem blaðið var keypt af Myllusetri ehf. í fyrra. Myllusetur gefur út Viðskiptablaðið sem er vægast sagt andvígt að slíkar upplýsingar séu birtar opinberlega. Nánast á hverju ári birtist í blaðinu skoðanapistill þar sem skammast er yfir tekjublöðunum, eru liðin fimm ár síðan lesendum tekjublaðanna var lýst sem „pervertum“. Kvisast hefur að útgefendurnir nýju hafi fundað og íhugað vandlega hvort gefa ætti út tekjublað í ár. Tekjublað Frjálsrar verslunar er hins vegar blaðið sem selst langmest og eins og alltaf hjá frjálshyggjumönnum þá trompa peningar alltaf hugsjónir á endanum.