Kannanir benda til þess að Viðreisn verði í oddastöðu í borginni eftir kosningar. Þrátt fyrir að meirihlutinn haldi samkvæmt skoðanakönnunum hafa síðustu kosningar sýnt að Píratar eru ekki jafn duglegir að skila sér á kjörstað og kjósendur annarra flokka. Sósíalistar verða án efa erfiðir viðureignar og því liggur beinast við fyrir Dag og félaga að reyna að fá Þórdísi Lóu og Pawel í Viðreisn til liðs við sig. Ef svo fer að Flokkur fólksins nái inn þyrfti Eyþór Arnalds að reyna að mynda breiðfylkingu Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar, Miðflokks, Framsóknarflokks, Flokks fólksins og Sósíalista til að fella meirihlutann. Það yrði sannkölluð sirkusbreiðfylking.