Ljósmæður eru langþreyttar á að lækka í launum við bæta við sig námi, fá ekki pásu í vinnunni og þurfa að hlaupa til vinnu allan tíma sólarhringsins. Nefna þær sérstaklega í nýjustu yfirlýsingu sinni um að þær séu hættar að taka aukavaktir, að álagið á starfsmenn á gólfi Landspítalans hafi aukist verulega eftir að ríkið ákvað að fækka fæðingarstöðum úti á landi og til þess að mæta því álagi hafi verið höfðað til hollustu þeirra við spítalann. Með öðrum orðum, ríkið og Landspítalinn hafa síðustu ár treyst á meðvirkni ljósmæðra.
Í stað þess að horfa til lausna á borð við laun í takt við ábyrgð eða að setja ljósmæður undir kjararáð, þá notast ríkið nú þegar við kerfi sem tryggir embættismönnum fínar tekjur.
Þar fá starfsmenn, sem þurfa að hlaupa til allan sólarhringinn, topplaun og geta smurt ofan á það gjöld fyrir athafnir líkt og prestar. Myndu þá ljósmæður geta rukkað 19.146 kr. fyrir fæðingu, 12.445 kr. fyrir að taka á móti fylgjunni og 1.915 kr. fyrir að klippa naflastreng.
Ekki flækja málið, setjum ljósmæður í prestakerfið.