Vantrú mun halda ólöglegt bingó á Austurvelli klukkan 13:00 á föstudeginum langa, en bingóspilun á föstudeginum langa er sérstaklega bannað í helgidagalögunum. Með þessu er Vantrú að mótmæla þeim lögum og sambandi ríkis og kirkju. Páskaegg verða í verðlaun og allir eru velkomnir og ekki er búist við að lögreglan stöðvi lögbrotið.