Umræðan um kosningarétt Íslendinga á aldrinum 16 til 18 ára í sveitarstjórnarkosningum er komin í hinar hefðbundnu skotgrafir. Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Miðflokkur eru á móti því að ungmenni fái að hafa áhrif á sitt sveitarfélag því samkvæmt skoðanakönnunum er ungt fólk ólíklegt til að kjósa þessa flokka. Af sömu ástæðu eru Vinstri græn og Píratar mjög hrifnir af því að lækka kosningaaldurinn. Þingmennirnir sem sjá enga ástæðu til að skoða mál ítarlega telja nú að leggjast þurfi yfir þetta mál og upp er komin skyndileg þörf fyrir að miða allar aldurstakmarkanir við sjálfræðisaldur. Á meðan eru þeir sem boða öguð vinnubrögð tilbúnir að drífa málið í gegn. Hvernig væri að líta upp úr skotgröfunum og spyrja ungmennin á einskismannslandinu hvort þau séu tilbúin að kjósa í vor?