Margir góður Framsóknarmaðurinn rak upp stór augu þegar tilkynnt var að Fjóla Hrund Björnsdóttir væri kominn yfir í Miðflokkinn. Héldu margir að klofningnum væri lokið og að nú væri komið að því að sækja fram. Framsóknarflokkurinn fór illa út úr klofningnum, margir sem yfirgáfu flokkinn voru einstaklingar sem höfðu haldið að þeir yrðu Framsóknarmenn fram á síðasta dag. Endaði Framsókn með 10,7% atkvæða í síðustu kosningum, verstu niðurstöðu í 100 ára sögu flokksins. Horfa margir til Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra sem bjargvætt flokksins. Orðrómar ganga nú um að fleiri vonarstjörnur úr Framsókn séu á leið yfir í Miðflokkinn, það gæti því orðið mjög erfitt fyrir Lilju að halda flokknum á floti og hvað þá að láta flokkinn lifa af 21. öldina.