fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Hans eigið opinbera

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 16. maí 2018 16:05

Jónas Þór Guðmundsson, formaður kjararáðs og stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Finnur Árnason, forstjóri Haga, er reyndar einnig á myndinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gerði opinber umsvif á raforkumarkaði að umræðuefni sínu á aðalfundi Landsvirkjunar í vikunni: „Hið opinbera er yfir og allt um kring á raforkumarkaði. Hið opinbera fer með leyfisveitingar- og reglusetningarvaldið. Ríki og sveitarfélög eiga nær alfarið framleiðslufyrirtækin. Flutningakerfið og dreifiveiturnar eru í opinberri eigu og háð sérleyfum. Á raforkusölumarkaði þar sem ætlunin var að ná fram samkeppni eru fá merki um að hún sé í reynd til staðar.“

Fáum dylst að þarna á Bjarni við um einkavæðingu á raforkukerfinu til að ná fram samkeppni. Flestir geta verið sammála um að samkeppni sé af hinu góða. En þá þarf samkeppnin að vera raunveruleg. Þrjú fyrirtæki sem þurfa aldrei að skera niður nema hjá þeim lægst launuðu og reyna markvisst að koma í veg fyrir að önnur fyrirtæki komi inn á markaðinn er ekki raunveruleg samkeppni. Ef það á að einkavæða rafmagnið þá dugar ekki að auglýsa eftir góðkunningjum einkavæðingar til að kaupa og skuldsetja. Við prófuðum það og það virkaði ekki.

Athygli vekur hins vegar að það sem Bjarni vill einkavæða er stofnun sem er stjórnað af hans eigin fólki. Jónas Þór Guðmundsson, formaður kjararáðs og stjórnarformaður Landsvirkjunar, er vinur Bjarna eins og Eiríkur Jónsson benti á. Ragnheiður Elín Árnadóttir, sem sat í ríkisstjórn Bjarna, er einnig í stjórninni. Er ekki sniðugt að byrja á að biðja vinina að stjórna þessu almennilega áður en það er gefið? Bjarni gæti jafnvel hótað að hækka launin þeirra um sömu krónutölu og ljósmæður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir magnaðan sigur Arsenal – Óvænt tíðindi
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir

Ólýsanleg sjón blasti við 10 ára dreng þegar hann vaknaði – Allir í fjölskyldunni látnir
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fluttur með hraði á sjúkrahús með verk fyrir brjósti

Fluttur með hraði á sjúkrahús með verk fyrir brjósti