Það má með sönnu segja að ekkert gerist í heiminum nema Morgunblaðið segi frá því. Mest lesna frétt Moggans í dag fjallar um lögheimilisbreytingu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins.
Allir sem lesa Eyjuna og DV vita að þetta eru vægast sagt gamlar fréttir, reyndar frá því í byrjun mars.
Það er ekki nema von að Morgunblaðið hafi ekki náð tali af Sigmundi Davíð við vinnslu fréttarinnar, enda ekki erfitt að ímynda sér svipinn á Sigmundi að fá slíka deja vu fyrirspurn.