fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Grillþjófar herja á Úlfarsárdal: „Íbúum hérna í hverfinu er brugðið“

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 5. ágúst 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV hefur áður flutt fréttir af innbrotafaröldrum í ákveðnum hverfum og bæjarfélögum á höfuðborgarsvæðinu eins og á Kársnesinu í Kópavogi, Laugarneshverfinu í Reykjavík og í Garðabæ. Nú hefur fjöldi manns í Úlfarsárdal í Reykjavík lent í því að tapa gasgrillum og gaskútum. Gerendurnir eru að minnsta kosti tveir og hafa þeir sést við iðju sína á bíl sem reyndist vera stolinn. Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

 

Sjoppulegur og í klofsíðum buxum

Jón Baldvinsson, íbúi í Úlfarsárdal, er einn af þeim sem hafa fengið að kenna á grillþjófunum en í gærmorgun var nýlegu Weber-grilli stolið frá honum við heimili í Lofnarbrunni. Jón hefur tilkynnt þjófnaðinn til lögreglu og ræddi við DV. Hann segir:

„Íbúum hérna í hverfinu er brugðið. Nágrannakona mín bankaði upp á hjá mér í gærkvöldi og sagði mér að hún hefði verið að fara til vinnu rétt fyrir sjö um morguninn. Þá sá hún svolítið druslulegan náunga vappa með grillið mitt út í bílinn hjá sér og stinga því í skottið. Við stýrið sat að henni sýndist kona. Hún ákvað að keyra aðeins á eftir þeim inn í Freyjubrunn, næstu götu fyrir ofan, þar sem bíllinn staðnæmdist við fellihýsi. Þar tók nágrannakonan mynd af bílnum sem var nýlegur Subaru-skutbíll en síðan keyrði hún til vinnu.“

Nágrannakonan sá konuna sem sat við stýrið ekki vel en maðurinn var ungur, í klofsíðum buxum, með nærbuxurnar upp úr, líkt og hefur verið í tísku. En hann var þó „sjoppulegur“ til fara.

Þegar farið var að grennslast fyrir um bílinn kom í ljós að hann er í eigu Höldurs, Bílaleigu Akureyrar, en jafnframt að honum hafði verið stolið. Nágranninn tók einnig eftir því að bíllinn var troðfullur af alls konar góssi, en gat ekki greint nákvæmlega hvaða hlutir voru þar.

Fellihýsið sem kúturinn var klipptur af

Kútur klipptur af

Jón sá síðan á Facebook-síðu íbúasamtaka Úlfarsárdals að íbúinn sem átti fellihýsið umrædda hafði einnig orðið fyrir barðinu á þjófunum. Hann birti þar mynd sem sýndi að gaskútur hafði verið skorinn af hýsinu og tekinn.

„Utan um þennan kút var öflugur vírlás og strappar til að halda kútnum á fellihýsinu. Þeir virðast því hafa öflug tól og tæki til þess að stunda sína iðju. Þetta var ekki fest með einhverju plasti heldur var lásinn eins og öflugustu reiðhjólalásar.“

Jón, sem hefur búið í hverfinu í nokkur ár, segir að í gegnum tíðina hafi verið brotist inn í íbúðir þar rétt eins og annars staðar. Þarna er mikil uppbygging og mikið af verðmætum verkfærum á mörgum stöðum. Þetta mál sé hins vegar ekki eins og margar aðrar innbrotahrinur þar sem þjófar vakta hús og tæma þau af verðmætum þegar íbúarnir eru í burtu. Sjálfur telur hann að um dópistapar sé að ræða sem taki hluti sem auðvelt sé að taka.

Ekki eru þó allir sannfærðir um það. Ein kona í íbúasamtökunum tók eftir grunsamlegum bíl sem var lagt við verslunina Bauhaus við eina akstursleið úr hverfinu. Var bíllinn með gott útsýni yfir Vesturlandsveg og sat þar einn maður sem hugsanlega var að vakta lögregluna fyrir þjófana. Nefndi hún sérstaklega að bíllinn hefði verið með pólskar númeraplötur. Jón bendir á að fjöldi erlendra verkamanna sé við vinnu í hverfinu enda mörg hús í byggingu. Því sé ekkert víst að þessi bíll tengist málinu nokkuð.

Þrír aðrir íbúar hverfisins segja frá því á síðunni að grillum hafi verið stolið frá þeim og gaskútar hafi horfið frá þremur til viðbótar.

„Við vitum ekki nákvæmlega hversu margir hafa tapað grillum eða öðrum lausamunum af lóðunum sínum,“ segir Jón. „Ég veit ekki hvernig þessu er komið í verð. Hugsanlega fara þeir með gaskútana og fá skilagjald en sum grillanna eru gömul og ég veit ekki hvort það sé markaður fyrir þau. Ég hef ekki gefið mér tíma til að athuga hvort grillin séu komin inn á einhverjar sölusíður, Bland eða á Facebook.“

 

Sniffa eða selja

Valgarður Valgarðsson, aðalvarðstjóri á stöð 4 sem Úlfarársdalur fellur undir, segir að málið sé ekki leyst en að kærur hafi borist.

„Að grillum sé stolið er ekki algengt en það kemur fyrir. Það eru aðallega kútarnir sem hafa verið teknir. Það kemur fyrir að grill séu tekin en þá ekki í svona stórum stíl.“

Hvað gera þjófarnir við góssið?

„Það er allur gangur á því hvernig þeir reyna að koma þessu í verð. Hvort þeir noti þetta sem skiptimynt sín á milli eða hvort þetta er auglýst á sölusíðum.“

Er verið að sniffa úr kútunum?

„Það var nú sérstaklega mikið gert á tímabili. Þeir hafa líka reynt að selja þá, komu þá með kútana í stykkjavís og reyndu að fá greitt fyrir þá hjá olíufélögunum. En félögin eru búin að herða reglurnar hjá sér varðandi þetta. Þeir sem taka grill taka líka oftast kútana með.“

Innan Úlfarsárdals hefur verið rætt um að koma upp eftirlitsmyndavélakerfi við leiðir inn í hverfið, sem eru nokkuð fáar. Sífellt fleiri hverfi og bæjarfélög hafa gert það og má þar nefna Garðabæ, Seltjarnarnes, Selfoss, Kópavog og Mosfellsbæ. Fjármögnun og rekstur slíkra véla er með mismunandi hætti en þær eru settar upp í samstarfi við Neyðarlínuna og lögregluna sem eru einu aðilarnir sem hafa aðgang að þeim og upptökur einungis skoðaðar ef grunur leikur á að glæpur hafi verið framinn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu