Khaled Cairo, sem hefur verið ákærður fyrir morðið á Sanitu Braun, var alblóðugur frá toppi til táar og grínaðist eftir handtöku. Þetta sagði Sveinn Magnússon læknir við aðalmeðferð málsins í morgun en Sveinn gerði réttarlæknisfræðilega úttekt á Khaled. RÚV greinir frá.
Samkvæmt Sveini þá fíflaðist Khaled þegar átti að taka myndir af honum og „og stillti sér upp eins og módel. Þetta var mjög óvenjulegt af því sem maður á að venjast,“ hefur RÚV eftir honum. Sveinn segir að inn á milli hafi Khaled spurt um afdrif Sanitu en sagði þó að hún ætti ekkert gott skilið þar sem hún „ætti annan vin“.
Sveinn telur að Khaled hafi ekki verið í geðrofi en hann hafi verið ölvaður. „Ég held að ég hafi getið þess að hann hafi ekki verið í neinu geðrofi. Þessi hressileiki sem var í honum myndi ég ekki telja til geðrofs,“ hefur RÚV eftir Sveini.
Khaled hefur verið ákærður fyrir morðið á Sanitu en samkvæmt ákærur sló hann Sanitu ítrekað í andlitið og höfuð með tveimur til þremur glerflöskum og slökkvitæki og hert kröftuglega að hálsi hennar.