-
17. mars 2010
Ellý Ármanns og Freyr Einarsson björguðu því að heimili þeirra í Hörgshlíð færi á uppboð eftir að lánin af því ruku upp eftir hrunið. Flestar fjölskyldur í landinu eru í svipaðri stöðu.
Meira →
-
17. mars 2010
Ljósmyndara Séð og heyrt var meinuð aðganga að afmælistónleikum Páls Óskars Hjálmtýssonar á NASA um síðustu helgi. Ritstjóri blaðsins, Eiríkur Jónsson, vekur máls á þessu á bloggi sínu og segir það undarlegt í ljósi þess að Séð og heyrt hafi hampað Páli Óskari svo gott sem vikulega í áratug, fyrir utan að leggja „réttindabaráttu samkynhneigðra lið svo um munar“, eins og Eiríkur orðar það.
Meira →
-
15. mars 2010
Hópur sem kallar sig Öðlingarnir efnir til uppboðs til styrktar Neyðarmóttöku vegna nauðgana á Grand Hotel í Reykjavík á miðvikudaginn. Öðlingarnir eru meðal annarra Rúnar Kristinsson knattspyrnumaður, Karl Sigurðsson Baggalútur, Snorri Ásmundsson myndlistarmaður og Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), leikari og sjónvarpsmaður.
Meira →
|
-
17. mars 2010
Nú í miðju pungakáfsátaki Krabbameinsfélagsins er gaman að segja frá því að miðasala er hafin á Eistnaflug, hina árlegu rokkhátíð sem haldin hefur verið í Neskaupstað frá árinu 2005. Rokk í þyngri kantinum er í hávegum haft á hátíðinni, sem fram fer 8. til 10. júlí, en nær allur skali rokktónlistarinnar er þó spannaður.
Meira →
-
15. mars 2010
Aðalheiður Birgisdóttir, betur þekkt sem Heiða í Nikita, virðist hafa fundið ástina á ný. Heiða og barnsfaðir hennar og fyrrverandi sambýlismaður, Rúnar Ómarsson, slitu samvistum fyrir nokkrum misserum en þau stofnuðu hið farsæla hönnunarfyrirtæki Nikita fyrir um áratug. Orðið á götunni er að Amor hafi skotið örvum sínum í Heiðu og Egil Tómasson sem stundum er kenndur við hljómsveitina sálugu Soðna fiðlu.
Meira →
-
14. mars 2010
Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir hefur verið mikið milli tannanna á fólki vegna sambands hennar við knattspyrnuhetjuna Dwight Yorke sem hún kynntist þegar hún var au pari á Englandi. Í helgarviðtali í DV lýsir Kristrún kynnum sínum af íslenskum karlmönnum sem hún segir að séu oft á tíðum ekki upp á marga fiska.
Meira →
|
|
|
-
13. mars 2010
„Mér hefur alltaf þótt fertugir karlmenn svo glæsilegir og jarðtengdir. Þá er maður líka búinn að afgreiða ýmislegt í lífinu og kominn með sjálfan sig á hreint. Ég er alveg ofsalega glaður og ánægður að hafa náð þessum áfanga en ég er ánægðastur með hvað ég lít vel út,“ segir Páll Óskar sem heldur upp á fertugsafmæli sitt í dag með risapartíi á Nasa.
Meira →
-
12. mars 2010
„Ég er engin viðtalskona því mér dettur aldrei neitt í hug nema þegar enginn hlustar. Þá dettur manni voða mikið í hug. Tónlistin er eiginlega mitt mál,“ segir Jórunn Viðar, tónskáld og píanóleikari, þegar blaðamaður kíkir í stutta heimsókn til hennar á Droplaugarstaði, daginn eftir að hún hlaut heiðursverðlaun Menningarverðlauna DV 2009 sem afhent voru síðastliðinn miðvikudag.
Meira →
-
10. mars 2010
„Einu sinni á ári er afmælisvika hér á Lindinni. Í þessari viku erum við með fjáröflun. Þetta var mín uppástunga, ég gaf sjálf 10 þúsund krónur fyrir að fá lagið í spilun, ef einhver hefði viljað fá það úr spilun gat hann borgað 10 þúsund krónur,“ segir Svanhildur Hákonardóttir, sjálfboðaliði á Kristilegu útvarpsstöðinni Lindinni.
Meira →
-
10. mars 2010
Svokallað Popp-Emo-Punk-kvöld fer fram á skemmtistaðnum Sódómu á morgun, fimmtudag. Fram koma hljómsvetirnar Endless Dark, Nögl og Reason To Believe. Húsið opnar klukkan 21 og kostar 500 krónur inn. 18 ára aldurstakmark.
Meira →
-
9. mars 2010
„Ég er að fara til útlanda að vinna og er mjög spennt. Ég fer til Danmerkur, Suður-Afríku og New York þar sem ég er komin með verkefni þannig að ég verð mikið á flakki á þessu ári,“ segir Tinna Alavis í nýjasta tölublaði Séð og Heyrt.
Meira →
|
-
12. mars 2010
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff mun byrja að prjóna lengsta trefil í heimi í Saltfisksetrinu á laugardaginn. Með því verður sett menningarvika í Saltfisksetrinu en stefnt er að því að fá heimsmetið staðfest í heimsmetabók Guinness.
Meira →
-
12. mars 2010
Breski leikarinn Clive Owen mun leika ásamt hasarmyndahetjunni Jason Statham í nýjustu mynd Sigurjóns Sighvatssonar, The Killer Elite. Sigurjón og hans fólk eiga einnig í viðræðum við danska stórstjörnu um að leika í myndinni.
Meira →
-
10. mars 2010
„Hann er bara vinur minn. Ég geri þetta stundum, tek vídeó með vinum mínum,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra þegar blaðamaður spyr hana hvaða herramaður hafi sést með henni úti á myndbandaleigu í miðbænum um síðustu helgi. Eins og einhverjum er kannski kunnugt hefur Katrín verið einhleyp nokkuð lengi, líkt og kom meðal annars fram í viðtali við hana í DV síðastliðið sumar.
Meira →
-
10. mars 2010
Fyrrum landsliðsmaðurinn í handbolta, Markús Máni Michaelson Maute, nýtur lífsins þessa dagana á Gili-eyjunum í Indonesíu á sama tíma og hann liggur undir grun um stórfellt gjaldeyrisbrask. Markús er einn fjögurra sem voru handteknir og yfirheyrðir vegna gruns um að hafa braskað með allt að þrettán milljarða króna í gegnum félagið Aserta AB í Svíþjóð. Gjaldeyrisbraskið gæti hafa skilað þeim fjórmenningum milljarði króna í gróða.
Meira →
-
8. mars 2010
Myndir af Ásdísi Rán hafa birst án hennar vitundar á klámsíðunni glam0ur.com en það er ekki í fyrsta skipti sem ofurfyrirsætan verður fyrir barðinu á netþrjótum. Ekki er langt síðan að falsaðar nektarmyndir af ísdrottningunni gengu á Netinu og voru birtar í fjölmiðlum erlendis. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Séð og Heyrt.
Meira →
Fréttasafn »
|