Kona á þrítugsaldri er í haldi lögreglu eftir að hafa stungið kærasta sinn með samúræjasverði.
Hinn þrítugi Alex Lovell var fluttur á sjúkrahús í Oregon-ríki Bandaríkjanna 2.mars síðastliðinn með lífshættuleg stungusár.
Kærasta Lovell til tveggja ára, Emily Javier, hringdi í neyðarlínuna og sagði:
„Ég stakk kærastann minn. Ég held að hann sé dáinn. Flýtið ykkur!“
Talið er að árásin hafi átt sér stað eftir að hún fann stefnumótaforritið Tinder í síma Lovell. Þegar lögregla og sjúkraflutningamenn mættu á vettvang var íbúð þeirra þakin blóði.
Javier hefur verið ákærð fyrir morðtilraun og var sleppt úr haldi eftir að hafa greitt 350 þúsund Bandaríkjadali í tryggingu. Lovell er enn á sjúkrahúsi en er ekki lengur í lífshættu.